Brugðist við aðstæðum eins vel og kostur var
Lögregla og sýslumaður voru að venju á setningu Þjóðhátíðar. Talið frá vinstri Kristín Þórðardóttir sýslumaður á Suðurlandi, Arndís Bára Ingimarsdóttir lögreglustjóri, Stefán Jónsson yfirlögregluþjónn, Jón Bragi Arnarsson varðstjóri og Aron Daði Hauksson varðstjóri. Myndir Óskar Pétur.

Sýnir sig enn og aftur hvað Vestmannaeyingar taka vel á móti gestum sínum

„Það sem kom okkur á óvart á föstudagskvöldinu voru þessar miklu hviður. Spáin var ekki góð en við áttum ekki von á þessu ósköpum. Þegar ég kíkti á mælinn á Stórhöfða á vedur.is sýndi hann hviður upp í 30 metra en ég held því fram að þær hafi verið mun sterkari inni í Herjólfsdal um kvöldið og fram yfir 2 um nóttina. Hvað veldur veit ég ekki en þar hefur landslagið örugglega sitt að segja,“ segir Stefán Jónsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum þegar hann er beðinn um að lýsa aðstæðum á Þjóðhátíðinni þegar hvað mest gekk á, rok og úrhellis rigning. Einnig þeim erfiðleikum þegar síðasta ferð Herjólfs féll niður á laugardeginum.

Hann segir átökin í veðrinu hafi verið mikil og eðlilegt að fólk yrði skelkað en segir ekki hafa verið ástæða til að rýma Dalinn. „Við veltum því fyrir okkur hvort ætti að binda enda á dagskrána. Okkar mat var að þeir sem skemmtu sér á Brekkusviðinu væru í skjóli fyrir versta veðrinu. Hefðum við klippt á dagskrána hefði fólkið farið úr skjólinu eitthvað annað og hefði það verið betra? Það bjargaði líka miklu að fólk var á svæðinu og tókst sem betur fer að koma í veg fyrir verulegt tjón.“

 

Tveir hressir í Herjólfshöll sem var mörgum skjól þegar veðrið var hvað verst.

Allir brugðust við

Stefán segir að margir hafi komið að verki, lögregla, gæslufólk, Björgunarfélag auk fólks frá ÍBV.  „Aðgerðarstjórn var í húsi Björgunarfélagsins og við fundum að allir voru að vilja gerðir til að hjálpa. Kölluðum út stóra bíla, fengum tæki frá Golfklúbbnum og Bragi Magnússon hjá Laxey svaraði kallinu þegar við báðum þá um hjálp. Fundu til skotbómu lyftara og hjálma. Þetta var bara ekkert mál og fólk gekk í verkin. Gunnar Ingi, sem var með rútuferðir í Dalinn brást við þegar hann var beðinn um að opna rúturnar og koma fólkinu úr Dalnum án gjalds. Margir nýttu sér Herjólfshöllina sem alltaf kemur að góðum notum þegar á þarf að halda á Þjóðhátíð.“

Niðurstaða Stefáns er að brugðist hafi verið við aðstæðum eins vel og kostur var. „Við vorum í beinu sambandi við Veðurstofuna sem sagði að veðrið myndi ganga niður um þrjú leytið um nóttina. Það gerðist reyndar háfltíma fyrr. Þá tók við venjuleg Þjóðhátíð eins langt og það nær,“ segir Stefán og hlær.

 

Velbúnir gestir og góðir regngallar orðnir tískufatnaður enda búum við á Íslandi. Það veit fólk.

Vandi þegar Herjólfsferð féll niður

„Þetta var þó ekki búið því mikill vandi skapaðist þegar Herjólfur felldi niður síðustu ferðina á laugardeginum. Fullt af túristum í bænum, KR liðið og áhangendur bættust þar við og enga gistingu að fá. KR-ingarnir fóru upp í Hamarsskóla og svo opnaði Íþróttamiðstöðin sal fyrir ferðamennina.  Send var út tilkynningu til ferðafólks og annarra sem voru í vandræðum og þeim bent á að hafa samband við lögreglu þ.e.a.s þeim sem ekki voru komnir með gistipláss.  Það komu ansi margir og þurfti að opna sal í íþróttahúsinu. Þetta var vont á þeim tíma þegar allt er uppbókað en það tókst að útvega fólkinu einhverja gistingu.“

Stefán segir engin alvarleg slys hafi komið inn á borð lögreglu en eðlilega sleppi ekki allir ómeiddir  af útihátíð af þeirri stærðargráðu sem Þjóðhátíð er. „Það var einhver saumaskapur og tognanir en ekkert sem tengdist ofsa veðrinu að því við best vitum. Miðað við allt og allt erum við bara nokkuð sátt við Þjóðhátíðina 2025. Hvað margir voru í Dalnum veit ég ekki,“ segir Stefán en bendir að salan hafi verið  svipuð og 2023.

 

Stuð og stemning í Brekkunni.

Líða ekki eggvopn

Hann segir gleðiefni að enn eina Þjóðhátíðina varð lögreglan lítið vör við eggvopn sem eru þó vaxandi ógn hér á landi. „Við látum finna fyrir okkur og komum á framfæri að við líðum ekki eggvopn á Þjóðhátíð. Maður sem veittist að lögreglumanni notaði hvorki hnúajárn eða kylfu eins og mátti skilja á fréttum. Málið var, að þegar hann var handtekinn kom í ljós að hann var með þessi vopn á sér.“

„Heilt yfir eru þetta skemmtilegir krakkar sem hingað koma og mæta til að skemmta sér og öðrum. Lang flest til mikillar fyrirmyndar fyrir utan þessa fáu sem alltaf eru til vandræða. Velbúin og góðir regngallar orðnir tískufatnaður enda búum við á Íslandi. Það vita krakkarnir.“

 

Þessar skemmtu sér enda vel búnar.

 

Allir hjálpuðust að

Þegar Stefán er beðinn um að gefa Þjóðhátíðinni 2025 einkunn segir hann að fram undan sé að fara yfir og meta hvernig til tókst við oft mjög erfiðar aðstæður. „Auðvitað má skoða hvort við hefðum átt að opna Herjólfshöllina fyrr og fleiri atriði. En þegar reyndi á kerfið fannst mér við standa okkur vel. Fengum fullt af björgunarfélagsmönnum á föstudagskvöldið og það voru allir boðnir og búnir að hjálpa til. Heimafólk að þurrka föt af fólki og líka efnalaugin Straumur. Eyjablikk bjargaði fólki um tjaldhæla og svona má lengi telja. Það hjálpuðust allir að klára verkið. Ég er ekki ósáttur en við vorum að vinna við erfiðar aðstæður og mitt fólk stóð sig með miklum sóma. Öll hundblaut en það kvartaði engin. Gengu í verkin og hlógu að rigningunni,“ sagði Stefán að endingu.

 

 

 

 

Nýjustu fréttir

Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.