Burt með nagladekkin
Liðin vika var með rólegra móti hjá lögreglu og ekki mörg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og ekki mikið um útköll á öldurhúsin. Að vanda var eitthvað um það að fólk var að kvarta yfir hávaða frá heimahúsum.
Aðfaranótt 10. maí sl. var lögreglu tilkynnt um að eldur logaði í potti á eldavél en búið var að slökkva eldinn þegar lögregla og slökkvilið kom á staðinn. �?arna hafði húsráðandinn verið að sjóða egg en sofnað út frá eldamennskunni með þessum afleiðingum. Nágranni mannsins varð var við brunalykt og vakti húsráðandann sem náði að slökkva eldinn. Manninum varð ekki meint af atvikinu og lítið tjón varð af völdum eldsins.
Ein eignaspjöll voru tilkynnt lögreglu í liðinni viku en um var að ræða rúðubrot að Miðstræti 3 aðfaranótt 11. maí sl. �?arna höfðu tvær rúður verið brotnar með því að henda í þær bjórflöskum. Ekki er vitað hver þarna var að verki en lögreglan óskar eftir öllum þeim upplýsingum sem gæti leitt til lausnar málsins.
�?rjár kærur liggja fyrir vegna brota á um ferðarlögum en um er að ræða ólöglega lagningu ökutækis, akstur án þess að hafa endurnýjað ökuréttindi og vanrækslu á að færa ökutæki til skoðunar.
Tvö um ferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni og var í báðum tilvikum um minniháttar óhöpp að ræða og engn slys á fólki.
Lögregla vill minna ökumenn og eigendur ökutækja á að á næstu dögum mun lögreglan byrja að sekta vegna aksturs á nagladekkjum. Sekt fyrir hvern negldan hjólbarða er kr. 5.000,-.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.