Danski miðvörðurinn Rasmus Steenberg Christiansen skrifaði nú fyrir skömmu undir rúmlega árs samning hjá ÍBV. Christiansen hefur verið í láni hjá ÍBV í sumar frá danska úrvalsdeildarliðinu Lyngby en lánssamningurinn átti að renna út 18. júlí næstkomandi. Danska félagið riftir hins vegar samningi sínum við leikmanninn og kemur hann því til Eyjamanna án greiðslu.