„Það hefur tvisvar verið haft samband við mig vegna þessarar myndar en í bæði skiptin var það eftir að búið var að ákveða að gera hana. Hefði kannski verið eðlilegra að heyra í manni hljóðið áður en lagt var af stað en greinilega hefur maður lítið að segja um þetta.“ sagði Guðlaugur Friðþórsson, um myndina Djúpið sem Baltasar Kormákur og fleiri ætla að gera.