Ársreikningar Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans fyrir árið 2012 voru lagðir fram á fundi bæjarráðs á mánudag og samdægurs samþykktir til seinni umræðu í bæjarstjórn. Rekstrartekjur á árinu námu um 4.267,6 millj. kr. samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 3.380,3 millj. kr. Rekstrartekjur A-hluta námu um 3.240,5 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 2.534,2 millj. kr. Álagningarhlutfall útsvars var 14,48% sem er lögbundið hámark þess. Álagningarhlutfall fasteignaskatts nam 0,42% vegna íbúðarhúsnæðis og 1,55% vegna atvinnu- húsnæðis en lögbundið hámark þess er 0,625% og 1,65%.