Töframaðurinn Einar Mikael mun vera með sýningu í Höllinni í kvöld, 3. maí en hér með er áréttað að sýningin hefst klukkan 19:30. Sýningin er stútfull af áhrifamiklum töfrabrögðum og miklum húmor. Þetta er 70 mínútna löng fjölskylduvæn töfrasýning, sem hefur að geyma allt það besta sem töframaðurinn Einar Mikael er búinn að vera að vinna markvist að síðastliðin 3 ár.