Það kom fram í fréttum RUV um daginn að Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja (HSV) sé rekin með 100 milljóna króna halla. Eflaust hugsa flestir sem að skoða þá frétt að þetta sé eitt annað dæmið um stofnun sem að skorið hefur verið niður hjá eins og öðrum heilbrigðisstofnunum landið um kring. Staðan er hins vegar slæm hjá HSV vegna þess að stofnunin hefur þá sérstöðu að hún þarf ákveðið sjálfstæði vegna fjarlægðar við sértæka þjónustu sérfræðinga í Reykjavík.