Frá því að eldgosasafnið Eldheimar opnaði hefur það notið mikilla vinsælda. Á safninu eru tvær sýningar, annarsvegar er saga Heimaeyjargossins 1973 sögð á áhrifamikinn hátt og hinsvegar er fræðslusýning um þrónu lífs í Surtsey, sem gaus 1963 �?? 67. Surtsey er einnig á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna fyrir sérstöðu sína.
�?að er greinilegt að áhugi erlendra ferðamanna á eldgosum er mikill. Frá opnun Eldheima fyrir tæplega 3 árum hafa hátt í 100.000 gestir heimsótt safnið. Flestir þeirra eða um 80% eru erlendir ferðamenn.
�?að styrkir áhrifin af Eldheimum að safnið er við rætur Eldfells, fjallsins sem varð til í náttúruhamförunum miklu 1973. Miðpunktur safnsins eru rústir húss er stóð við Gerðisbraut 10. �?að á sér enga hliðstæðu í heiminum að jafn ungar gosminjar hafi verið grafnar upp. Með hjálp nýjustu margmiðlunartækni við hlið húsarústanna er gosnóttin 23. janúar 1973 rifjuð upp. Farið yfir hvernig það var fyrir um 5300 íbúa Vestmannaeyja að vakna við drunur eldgossins og flýja í skyndi heimili sín. Margir þeirra sáu þau aldrei aftur. Á fjórða hundrað hús og byggingar urðu hrauni, ösku og eldi að bráð.
Fengið lofsamleg ummæli
Safnið hefur fengið mjög lofsamleg ummæli hvort sem er í fjölmiðlum eða á Tripatvisor. Safnið hefur tekið við fjölda viðurkenninga s.s. Hönnunarverðlaunum ársins 2015. �?að var einnig mikil viðurkenning fyrir safnið að The Guardian valdi það á lista yfir áhugaverðustu nýjungar á sviði ferðaþjónustu um víða veröld á sl. ári.
Hönnuður Eldheima er Axel Hallkell Jóhannesson, honum hefur svo sannarlega tekist vel til.
Arkitektúr hússins hefur vakið mikla athygli fyrir einstök frumlegheit. Byggingin á sér enga hliðstæðu. �?að er hátt til loft og vítt til veggja og hægt að virða fyrir sér húsarústirnar frá ýmsum sjónarhornum, frá svölum á annarri hæð eða brú sem liggur í gegnum bygginguna.
Í safninu er einstaklega skemmtilegt rými fyrir veitingasölu og menningarviðburði. �?túr rýminu er gengið út á pall, með stórkostlegu útsýi yfir Vestmannaeyjar. �?að er ánægulegt að segja frá því að þetta rými býður uppá einn besta hljómburð landsins. Nokkuð sem styrkir og eflir svo sannarlega mikilvægi og notagildi þessa rýmis. Arkitekt hússins heitir Margrét Kristín Gunnarsdóttir.
Fyrir utan það að vera safn á heimsmælikvarða þá eru Eldheimar einnig menningarmiðstöð. Á safninu eru reglulega metnaðarfullir menningarviðburðir. Tónleikar, myndlistasýningar, bókmenntadagskrár, m.m.
Á komandi goslokahátíð verður að vanda líflegt í Eldheimum. �?perusöngvararnir Silja Elsabet Brynjarsdóttir og Alexander Jarl �?orsteinsson verða með tónleika sem og Hrafnar. Listakonan �?órunn Bára verður með sýningu svo nokkuð sé nefnt.
Síðustu helgina í október verður svo grísk menningarhátíð. Von er á grískum tónlistarmönnum, grískur matur verður fram borinn og Egill Helgason talar um kynni sín af Grikkjum og Grikklandi.