Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði ÍBV í knattspyrnu, hefur verið valin í lokahóp íslenska landsliðsins fyrir lokakeppni Evrópumótsins, sem fram fer í Svíþjóð í næsta mánuði. Þetta verður fyrsta stórmót Elísu enda aðeins í annað sinn sem Íslandi tekst að komast í lokakeppni stórmóts. Í hópnum finnur hún fyrir systur sína, Eyjakonuna Margréti Láru og sömuleiðis Fanndísi Friðriksdóttur.