Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt við að sinna ýmsum verkefnum í tengslum við þjóðhátið án þess að nein meiriháttar mál kæmu upp. Tveir gistu fangageymslu í morgun vegna líkamsárása. Skýrslutökur yfir þeim fara fram í dag. Nokkur fíkniefnamál komu upp í gær og í nótt.