Tilkynning knattspyrnudeildar sem birt var hér á Eyjafréttum fyrir stuttu kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti. Gengi ÍBV í sumar hefur verið vaxandi en liðið hefur reyndar aðeins dalað nú á haustdögum. Engu að síður er ÍBV komið upp í annað sæti deildarinnar og hefur ekki verið ofar í sumar. Heimildir Eyjafrétta herma að Hermann Hreiðarsson verði næsti þjálfari ÍBV en Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar vildi ekkert tjá sig um það.