Mikill erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt og segir Jóhannes �?lafsson yfirlögregluþjónn að nóttin hafi verið svipuð þeirri síðustu. En þetta kom fram á
visir.is í morgun.
�??�?að komu upp nokkur líkamsárásarmál og voru tveir fluttir á heilsugæslu til aðhlynningar. Árásirnar áttu sér bæði stað í Herjólfsdal sem og í miðbænum. Einn er nefbrotinn,�?? segir Jóhannes. Tveir gistu fangageymslur lögreglu, báðir vegna líkamsárásarmála. Tvær árásir hafa verið kærðar til lögreglu.
Stærsta fíkniefnamál í sögu �?jóðhátíðar kom upp aðfaranótt laugardagsins þar sem hald var lagt á um 100 grömm af kókaíni, 100 grömm af amfetamíni og 180 e-töflur. �??Nítján fíkniefnamál hafa nú komið upp á hátíðinni í nótt,�?? segir Jóhannes.
Lögregla notast við fjóra fíkniefnahunda á hatíðinni og eru sex lögreglumenn að störfum sem sinna þessum málaflokki eingöngu.