Erill hjá lögreglunni í nótt
Mikill erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt og segir Jóhannes �?lafsson yfirlögregluþjónn að nóttin hafi verið svipuð þeirri síðustu. En þetta kom fram á visir.is í morgun.
�??�?að komu upp nokkur líkamsárásarmál og voru tveir fluttir á heilsugæslu til aðhlynningar. Árásirnar áttu sér bæði stað í Herjólfsdal sem og í miðbænum. Einn er nefbrotinn,�?? segir Jóhannes. Tveir gistu fangageymslur lögreglu, báðir vegna líkamsárásarmála. Tvær árásir hafa verið kærðar til lögreglu.
Stærsta fíkniefnamál í sögu �?jóðhátíðar kom upp aðfaranótt laugardagsins þar sem hald var lagt á um 100 grömm af kókaíni, 100 grömm af amfetamíni og 180 e-töflur. �??Nítján fíkniefnamál hafa nú komið upp á hátíðinni í nótt,�?? segir Jóhannes.
Lögregla notast við fjóra fíkniefnahunda á hatíðinni og eru sex lögreglumenn að störfum sem sinna þessum málaflokki eingöngu.

Nýjustu fréttir

Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.