Ný hraðhleðslustöð N1 í Vestmannaeyjum var tekin í notkun í gær. Tveir bílar geta hlaðið samtímis við stöðina og er hámarkshleðsluaflið 200 kW. Herbert Þorleifsson átti heiðurinn af því að vígja stöðina og vera fyrsti viðskiptavinurinn til að hlaða.
Stöðin er á norðurenda svæðis N1, við bílaþvottaplanið. Að sögn Jóns Viðars Stefánssonar, forstöðumanns einstaklingssviðs N1, voru bílar strax farnir að nýta hana og hefur allt gengið vel. Til að hefja hleðslu þurfa viðskiptavinir að sækja N1 appið.
Mögulegt er að auka afl stöðvarinnar í 400 kW síðar og fjölga hleðslutengjum. Stöðin þjónar bílum með CCS-tengi, sem að sögn Jóns Viðars er sú tengigerð sem stærstur hluti rafbíla hér á landi notar.
Jón Viðar segir aukna eftirspurn eftir hleðsluþjónustu hafa ráðið uppbyggingunni.
„Markaðurinn er bara að kalla eftir þessu,“ segir hann og bætir við að eftirspurnin aukist um land allt. „N1 er á fullu í orkuskiptum og eru Vestmannaeyjar engin undantekning.“
Uppsetningin hafi gengið frábærlega, þótt samgöngur milli lands og Eyja hafi seinkað henni um nokkra daga.
Verkefnið er alfarið á vegum N1. Jón Viðar segir að ekki séu uppi áform um aðra staðsetningu í Eyjum að svo stöddu, en til greina komi að fjölga tengjum og auka afl á núverandi stað. Verði eftirspurn meiri en framboð muni félagið bregðast við því.
Herbert Þorleifsson var fenginn til að vígja stöðina, enda hefur hann lengi kallað eftir þessari þjónustu.
„Herbert er einn af okkar góðu daglegu gestum hjá N1 og hafði hann kallað eftir þessari þjónustu lengi. Það var því vel við hæfi að hann væri fyrsti viðskiptavinurinn,“ segir Jón Viðar.
Hann bætir léttur við að tap Liverpool í Meistaradeildinni hafi ekkert með valið að gera, þótt honum skiljist að sú saga gangi meðal fastagesta N1 í Eyjum.
Jón Viðar hvetur Eyjamenn til að sækja N1 appið og velja N1 í Vestmannaeyjum sem „Stöðin mín“. Hann segir viðskiptavini þannig fá lægsta mögulega verð hjá félaginu á rafmagni og eldsneyti, ásamt því að safna punktum.
