Þétt þoka lá yfir hluta Heimaeyjar í morgun, en ofar á eynni var skyggnið annað. Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta, sendi myndir frá morgninum undir yfirskriftinni „Þoka hér en ekki þar“.
Óskar var á leið í myndatöku í Hamarsskólanum þegar þokan var hvað þéttust. „Það sá varla á milli handa minna í morgun þegar ég fór í Hamarsskólann,“ segir hann.
Að myndatökunni lokinni ók hann hringinn í kringum Helgafell. Þegar hann var kominn upp undir flugturninn ók hann upp úr þokunni og við blasti blár himinn.
Að mati Óskars var skyggnið við flugvöllinn þá svo gott að hvaða flugvél sem er hefði getað lent þar, hefði á þurft að halda.
