Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4

Dómsmálaráðuneytið tekur ekki afstöðu til þess hvort NSL-4 lögnin teljist almannavarnainnviður. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Vestmannaeyja frá 4. nóvember. Bæjarstjóri hefur ítrekað fundarbeiðni við innviðaráðuneytið og óskað eftir skýrum svörum við erindum sveitarfélagsins. Vestmannaeyjabær hafði óskað eftir formlegri viðurkenningu dómsmálaráðuneytisins á því að NSL-4 yrði skilgreind sem almannavarnainnviður. Bænum hefur nú borist afrit […]