Október er liðinn og við í Krabbavörn viljum þakka fyrir allan stuðninginn við félagið. Einstaklingar, félög og fyrirtæki lögðu sitt af mörkum með margvíslegum hætti.
Bókasafnið hélt bleikan dag, bleikir boltaleikir voru á dagskrá hjá ÍBV og bleikar messur og samkomur í kirkjum bæjarins. Bakaríin bökuðu bleikar kökur og kótilettukvöldið var haldið til styrktar Krabbavörn.
Sérstakar þakkir færum við öllum sem lögðu hönd á plóg við bleika kvöldið uppi í Höll, hvort sem var við undirbúning, matargerð, frágang eða með því að gefa happdrættisvinninga. Það yrði langur listi ef telja ætti upp alla sem komu að bleikum október.
Opið hús Krabbavarnar er í Arnardrangi við Hilmisgötu á þriðjudögum kl. 13.00–15.00. Á miðvikudögum er opið hús fyrir karlmenn kl. 19.30–21.00.
Krabbavörn þakkar öllum stuðninginn og óskar ykkur velfarnaðar á komandi tímum.
Stjórn Krabbavarnar Vestmannaeyja