Verkefnið Þjálfun við hæfi allra barna í Vestmannaeyjum hlýtur 250.000 króna styrk úr Samfélagsstyrk Krónunnar 2026. Markmiðið er að skapa jákvætt íþróttaumhverfi þar sem öll börn fá tækifæri til að taka þátt, þroskast og finna gleðina í leiknum.

Krónan hefur í gegnum Samfélagsstyrkinn stutt fjölbreytt íþrótta- og lýðheilsuverkefni fyrir börn og ungmenni um land allt. Að þessu sinni hlýtur verkefni ÍBV stuðning til að þróa þjálfun enn frekar með þarfir ólíkra barna að leiðarljósi.
Með stuðningi við verkefnið vill Krónan leggja sitt af mörkum til að fleiri börn fái að njóta sín í íþróttum og upplifa gleðina sem fylgir hreyfingu, þátttöku og samveru.
Í knattspyrnustarfi ÍBV verður meðal annars lögð áhersla á fleiri leiki og verkefni á æfingum, þannig að börnin fái fleiri snertingar við boltann og meiri tíma í leik.
Ívar Karl Sigurðarsson, verslunarstjóri í Vestmannaeyjum;
„Íþróttastarf getur haft mikið gildi fyrir börn, ekki síst þegar leitast er við að skapa umhverfi þar sem fleiri geta tekið þátt á sínum forsendum. Okkur þykir því mjög vænt um að geta stutt við verkefni ÍBV sem snýr að því hjálpa börnum að finna sig í íþróttum, og hafa gaman að þeim.“
Alex Freyr Hilmarsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV;
„Við viljum að sem flest börn séu virk og fái jákvæða upplifun af æfingunum. Með fleiri litlum mörkum getum við skipt hópunum upp í fleiri leiki og verkefni, þannig að börnin fá fleiri snertingar við boltann og meiri tíma í leik. Jákvæðar upplifanir á fyrstu árum í íþróttum skipta miklu máli og við viljum skapa umhverfi þar sem börnin hafa gaman, eignast góðar minningar og vilja halda áfram í íþróttum. Markmiðið er að sem flest börn geti fundið sinn stað í íþróttastarfinu og fengið þjálfun sem hentar þeim. Styrkurinn hjálpar okkur að halda áfram að þróa starfið í þá átt og við erum mjög þakklát fyrir stuðninginn.“