Dómsmálaráðuneytið tekur ekki afstöðu til þess hvort NSL-4 lögnin teljist almannavarnainnviður. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Vestmannaeyja frá 4. nóvember. Bæjarstjóri hefur ítrekað fundarbeiðni við innviðaráðuneytið og óskað eftir skýrum svörum við erindum sveitarfélagsins.
Vestmannaeyjabær hafði óskað eftir formlegri viðurkenningu dómsmálaráðuneytisins á því að NSL-4 yrði skilgreind sem almannavarnainnviður. Bænum hefur nú borist afrit af bréfi ráðuneytisins til innviðaráðuneytisins vegna málsins.
Samkvæmt fundargerðinni kemur fram í bréfinu að almannavarnir séu sameiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga. Verkaskipting samkvæmt almannavarnalögum ráði ábyrgð og kostnaðarskiptingu milli aðila. Ráðuneytið tekur hins vegar ekki afstöðu til þeirrar skilgreiningar á lögninni sem bærinn óskaði eftir.
Eftir að bréfið barst ítrekaði bæjarstjóri fundarbeiðni fyrir hönd bæjarráðs við innviðaráðuneytið. Í fundargerðinni segir að ákveðins misskilnings hafi gætt um málefni NSL-4 og að málið hafi þokast hægt áfram þrátt fyrir ítrekuð erindi.
Sveitarfélagið telur mikilvægt að farið verði yfir stöðu málsins og erindum þess svarað á fundi með hlutaðeigandi aðilum hið fyrsta.
Staða NSL-4 var einnig meðal þeirra mála sem bæjarfulltrúar og bæjarstjóri ræddu við þingmenn Suðurkjördæmis á fjarfundi 13. október. Bæjarráð ítrekaði á fundinum 4. nóvember nauðsyn þess að þingmenn fylgdu hagsmunamálum Vestmannaeyinga eftir á Alþingi og gagnvart ríkisstjórn.