Nemendur í 1. bekk í Hamarsskóla fengu í morgun afhentar prjónaðar húfur með áletruninni „Gegn einelti“ að viðstöddum foreldrum. Átján konur tóku þátt í prjónaskapnum og urðu húfurnar alls 83 talsins. Ljósmyndari Eyjafrétta var á staðnum og myndaði afhendinguna.
Hugmyndin kviknaði hjá umsjónarkennurum í 1. bekk síðasta vetur þegar þær lásu grein í Skólavörðunni um sambærilegt forvarnarverkefni í Oddeyrarskóla. Kolbrún Matthíasdóttir hafði samband við Önnu Bergrósu, skólastjóra Oddeyrarskóla, og fékk leyfi til að nýta uppskriftina. Markmiðið var að prjóna húfur á alla nemendur í 1. bekk í Hamarsskóla og afhenda þær í kringum 8. nóvember.
Hugmyndinni var strax vel tekið meðal prjónafólks skólans. Í Hamarsskóla er starfræktur handavinnuhittingur þar sem núverandi og fyrrverandi starfsfólk hittist reglulega og á notalegar stundir saman. Þar hófst prjónaskapurinn, áhuginn dreifðist víða og fljótlega voru húfurnar orðnar 83. Handverksfólkið lagði sjálft til garnið og fær kærar þakkir fyrir frá skólanum.
Þær sem sáu um prjónaskapinn voru Anna Lilja Tómasdóttir, Anna Rós Hallgrímsdóttir, Ásta Júlíusdóttir, Ásta Kristmannsdóttir, Guðbjörg Karlsdóttir, Guðrún Snæbjörnsdóttir, Heiðrún Lára Jóhannsdóttir, Inga Björg Þórðardóttir, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna Njálsdóttir, Kolbrún Matthíasdóttir, Margrét Elsabet Kristjánsdóttir, Marta Jónsdóttir, Rósa Hrönn Ögmundsdóttir, Sigurrós Ingólfsdóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir, Þórdís Jóelsdóttir og Þóra Guðmundsdóttir.
Aðstandendur verkefnisins vonast til að það vaxi og að fleiri í samfélaginu í Vestmannaeyjum taki þátt. Þau sem vilja fá uppskriftina geta haft samband við skólann.
Húfunum er ætlað að vera börnunum sífelld áminning og kveikja að umræðu um einelti, einnig heima fyrir.
„Við í Hamarsskóla vonum að húfurnar veiti þeim yl gegn kulda og ýti undir góðvild í garð hvers annars,“ segir í frásögn skólans.
Við afhendinguna sungu nemendur í 1. bekk skólasönginn og skólastjóri sagði nokkur orð. Að henni lokinni fóru foreldrar með börnunum í stofurnar þeirra og skoðuðu afrakstur menningarmóts sem fram fór í skólanum á fimmtudag og föstudag.
Þar sýndu nemendur hvað fær þau til að ljóma og hvað skiptir þau máli. Að sögn Önnu Rósar Hallgrímsdóttur, skólastjóra Hamarsskóla, voru þetta virkilega vel heppnaðir vinadagar.

Fleiri myndir frá í Hamarsskóla í morgun má sjá hér að neðan.