Anita Ársælsdóttir hefur tekið við starfi hjúkrunarstjóra á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum. Hún tekur við af Iðunni Dísu Jóhannesdóttur, sem starfar áfram á heilsugæslunni. Þetta kemur fram í frétt á vef HSU.
Anita er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Hún lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Hjúkrunarfræðiskólanum í Kaupmannahöfn árið 2007 og hefur meðal annars starfað á bæklunarskurðstofu í Odense og ristilspeglunardeild á sjúkrahúsinu í Vejle í Danmörku.
Síðasta áratug hefur Anita sinnt ungbarnavernd í Vestmannaeyjum og einnig leyst af sem deildarstjóri á sjúkradeildinni í Eyjum. Þá situr hún í fagráði HSU, sem skipað var í byrjun árs 2026.
„Ég hlakka mikið til að takast á við þetta nýja hlutverk með því öfluga starfsfólki sem starfar á heilsugæslunni í Eyjum og halda áfram að efla góða og aðgengilega heilsugæsluþjónustu fyrir íbúa Vestmannaeyja,“ segir Anita í frétt HSU.
HSU býður Anitu velkomna í nýtt hlutverk og þakkar Iðunni Dísu fyrir gott starf. Iðunn Dísa starfar áfram á heilsugæslunni í Vestmannaeyjum, þar sem reynsla hennar og þekking mun áfram nýtast.