Hið árlega konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV verður haldið í Kiwanis næstkomandi laugardag. Miðaverð er 9.900 krónur en uppselt er á kvöldið.
Að venju verður boðið upp á góðan mat og skemmtun. Sketsagerðin sér um veislustjórn kvöldsins og má búast við léttum húmor og góðum hlátri. LOSTI mætir með æsispennandi kynningu og Aron trúbbi sér um tónlistina og heldur uppi fjörinu fram eftir kvöldi.
Húsið opnar klukkan 19:00 og hefst borðhald klukkan 19:30. Þar verður því hægt að njóta góðs matar, skemmtunar og samveru.
Þeir sem vilja komast á biðlista eftir miðum geta haft samband við Gígju Óskarsdóttur í síma 868-8777.