Drög að dagsetningu leikja í úrvalsdeild karla í knattspyrnu liggur nú fyrir. Samkvæmt drögunum byrja Eyjamenn á útileik sunnudaginn 10. maí þegar þeir sækja Fram heim í Laugardalinn. Fyrsti heimaleikurinn er svo þremur dögum síðar þegar Breiðablik kemur í heimsókn. Íslandsmótinu lýkur svo 26. september en þá leikur ÍBV gegn Keflavík á útivelli.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst