ÍBV er komið upp í annað sæti deildarinnar eftir 2:1 sigur á Grindavík í dag á Hásteinsvellinum. Eyjamenn byrjuðu mjög vel og komust í 2:0 með mörkum Christian Olsen og Andra Ólafssonar en Andri skoraði úr vítaspyrnu eftir að brotið var á Víði Þorvarðarsyni.