Á vef Samgöngustofu (Siglingastofnunar) eru ýmsar fróðlegar upplýsingar. Þar er m.a. að finna kort sem uppfærist reglulega og er af skjólinu sem myndast við Landeyjahöfn, vegna Vestmannaeyja. Þetta er svo sem ekkert nýtt því Gísli Viggósson hjá Siglingastofnun hefur margsinnis sýnt fram á þetta. Ýmsir hafa þó orðið til að véfengja orð Gísla, og sagt að betra hefði verið að Landeyjahöfn hefði verið vestar á ströndinni, því þar væri ölduhæðin lægri. Og hafa byggt þá skoðun sína á reynslu sinni af sjósókn á þessu svæði.