Stjórn Útvegsbændafélags Vestmannaeyja fagnar þeirri ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni. Hvalveiðar hafa í för með sér atvinnusköpun og útflutningstekjur. Í hafinu við Ísland eru um 350 þúsund hvalir, stórir og smáir. Árlega éta þeir um 6 milljónir tonna af sjávarfangi, þar af um 2 milljónir tonna af fiski. Hvalveiðar skipta okkur Íslendinga gríðarlega miklu máli. Afrán hvalastofna hér við land er miklu meira en áður var talið, eins og nýjustu rannsóknir Hafrannsóknastofnunarinnar gefa til kynna.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst