Lögreglan hafði nóg að gera í liðinni viku við að svara fyrirspurnum gesta Þjóðhátíðar sem tapað höfðu hinum ýmsu smáhlutum á hátíðinni en nokkuð var um óskilamuni eftir hátíðina. Flestir þessir munir rata til eigenda sinna en alltaf er eitthvað um að munir sitja eftir og komast ekki til skila.