Vegna frétta af bruna í Hveragerði út frá Etanól arni um helgina, sendi Ragnar Baldvinsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Vestmannaeyja ritstjórn Eyjafrétta grein Mannvirkjastofnunar um umgengni við Etanól arna en talsvert af slíkum örnum hafa verið settir upp víðs vegar um landið undanfarin ár.
Etanól-arnar
Af gefnu tilefni vill Mannvirkjastofnun benda á eldhættu sem getur stafað af etanól-örnum ef ekki er rétt með þá farið. Undanfarin ár hefur verið sett upp mikið af etanól-örnum í húsum hér á landi og það talið þeim til kosts að ekki þurfi að setja upp reykháf frá þeim og “engin” eldhætta stafi af þeim. Mannvirkjastofnun er kunnugt um að sprengingar hafi orðið í slíkum örnum með þeim afleiðingum að það kviknaði í húsinu sem þeir voru í og einnig eru til dæmi um alvarleg slys á fólki vegna etanól-arna.
Í etanól-örnum er brennt etanóli í opnum skálum, ýmist á vökvaformi eða sem gel. Etanólið hefur blossamark 13°C, sprengimörk þess er 3,3-19% og sjálfsíkviknun verður við 370°C.
DBI í Danmörku hefur prófað slíkan arinn í tilraunastofu sinni. �?ar voru skálarnar í arninum fylltar af etanóli og u.þ.b. einni matskeið (2 cl) hellt niður utan við þær áður en kveikt var upp í arninum. Eftir 20 mín varð sprenging í honum. Við sprenginguna slettist logandi etanól út úr arninum og logaði á gólfinu umhverfis arininn. Talið er að algengasta orsökin fyrir sprengingunum sé að nokkuð af etanóli hafi hellst niður í lokaðan botn í arninum. Við hitann frá logunum gufi etanólið upp þar til innihald þess í loftrýminu í arninum nær sprengimörkum en við það verður sprenging og lognadi etanólið dreifist út frá arninum.
Mannvirkjastofnun vinnur að leiðbeiningum um uppsetningu og notkun etanól-arna sem settar verða á heimasíðu stofnunarinnar þegar fyrsta útgáfa þeirra liggur fyrir. Eftirfarandi texti er úr drögum að þessum leiðbeiningum.
Leiðbeiningar um etanól-arna
Við uppsetningu á etanól-arni þarf að gæta að eftirfarandi þáttum:
�?� Arininn þarf að hengja á eða láta standa á stöðugu og óbrennanlegu undirlagi.
�?� Lágmarksfjarlægð að brennanlegu efni má ekki vera minni en 1 m (gardinur eða þ.h.).
�?� Lágmarksstærð herbergis sem slíkur arinn er notaður í er 23 m2 eða 56 m3, en eftir því sem arininn og eldsneytismagnið er stærra þarf stærra rými.
�?� Arininn má ekki nota í kjallara né í svefnherbergjum.
�?� Ekki má setja arnana þar sem er dragsúgur (trekkur).
�?� Við bruna etanólsins minnkar súrefni í rýminu og koldíoxíð og kolmónoxíð myndast. �?að er því mikilvægt að loftræsting sé nægjanleg.
�?� Við val á staðsetningu þarf að huga að því að börn og gæludýr komist ekki í snertingu við logana.
�?� Fara skal að öðru leiti eftir leiðbeiningum framleiðanda.
Nokkrar ábendingar við notkun etanól-arna:
�?� Ekki má flytja arininn meðan logar í honum né meðan hann er heitur eftir notkun. Eingöngu má flytja hann þegar ekkert eldsneyti er í honum.
�?� Ekki má láta loga í arninum án eftirlits fullorðinna.
�?� Ekki má nota aðra gerð eldsneytis en framleiðandi mælir með.
�?� �?ll ílát undir eldsneyti eiga að vera með barnalæsingu og geymast á öruggum stað.
�?� Áfylling eldsneytis á að fara eftir leiðbeiningum framleiðanda. Aldrei má bæta etanóli á arinn sem logar í. Gæta þarf að því að þegar lítið er orðið eftir af etanólinu getur verið erfitt að sjá hvort ennþá logar í því. Ekki má fylla á arininn fyrr en hann er orðinn alveg kaldur. Gæta þarf sérstaklega að því að eldsneyti hellist ekki niður í hann.
�?� �?egar kveikt er upp í arninum er gott að nota langar eldspýtur eða langa kveikjara.
�?� Eingöngu má slökkva í eldsneytinu með þar til gerðum lokunum, þar sem þær eru til staðar, annars verður að láta eldsneytið brenna upp. Ekki má nota vatn til þess að slökkva í bruna í etanól-arni. �?etta á einnig við þegar slökkva þarf í arninum vegna óhapps. Nota skal slökkvitæki sem ætlað er til nota á alkóhól-elda t.d. dufttæki.
�?� Fara skal að öðru leiti eftir leiðbeiningum framleiðanda um notkun arinsins.