Brynjar Gauti Guðjónsson, varnarmaður ÍBV sem fékk að líta rauða spjaldið á 16. mínútu í leiknum mikilvæga gegn KR, viðurkennir að hafa krækt aftan í Grétar Sigfinn Sigurðarson í viðtali við Fótbolti.net. Hann segir þó að brotið hafi ekki verðskuldað rauða spjaldið. „Mér fannst þetta svolítið harður dómur. Ég hef séð það verra og lent í verra inni á fótboltavellinum.“