Ferðamannaverslun með ýmsar nauðsynjar

Kaffi og kökur, öl og sælgæti er að sjálfsögðu til sölu. Verslunin er ekki síður ætluð fyrir fólkið undir Eyjafjöllum, að það geti keypt matvörur s.s. mjólkurvörur og brauð án þess að þurfa að aka langar leiðir eftir þessum hlutum.
Mikil nausyn hefur verið á að koma á fót slíkum stað við hinn fjölsótta ferðamannastað, Skógafoss. �?að er fjöldi fólks sem gistir á hverri nóttu við fossinn og langt að fara í verslun.

Einnig er tilbreyting í að fá sér eitthvað saðsamt og gott í svanginn í langri útilegu.
Fossbúð hefur fengið andlitslyftingu og ýmsar breytingar hafa verið gerðar innanhúss, svo koma mætti veitingastaðnum skemmtilega fyrir, en sérlega vel hefur tekist til í þeim efnum.
Í haust urðu eigendaskipti á Hótel Skógum, en hótelið er nú eitt af þeim hótelum sem rekið er undir merki Allseasonhotels.is, hin hótelin eru Hótel Háland, Hálendismiðstöðin á Hrauneyjum og Hótel Rangá.

Hótel Skógar var opnað 1. maí sl. en um er að ræða lítið rómantískt og notalegt lúxushótel, staðsett á Skógum, rétt við hinn tignarlega og heimsþekkta Skógafoss. Hótelið er búið 12 herbergjum með baði.
Hótelið er í miklu uppáhaldi hjá ferðafólki, sem vill kaupa pínulítinn lúxus og fá frábæra
þjónustu í kaupbæti, ásamt góðum aðbúnaði, fólki sem vill smá dekur. Á hótelinu liggur rómantíkin í loftinu, þar er dýrindis veitingastaður, heitur pottur er utandyra svo og sauna. Náttúran umhverfis hótelið er ótúlega falleg, stórbrotin og magnþrungin. Gestum hótelsins býðst að notfæra sér ýmsa afþreyingu í nágrenninu, að ógleymdu Byggðasafninu á Skógum. Hótel Skógar hafa notið sérstakra vinsælda hvað varðar brúðkaupsveislur og brúðhjónin þá gjarnan látið gefa sig saman í safnakirkjunni á Skógum, auk þess hefur verið vinsælt að vera þar með aðrar lítlar veilsur, enda hótelið fallegt í fögru umhverfi.
Sömu aðilar reka Veitingastaðinn í Fossbúð og Hótel Skóga.

Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.