Vestfirski Rokk-kórinn Fjallabræður eiga Þjóðhátíðarlagið í ár. Halldór Gunnar Pálsson Fjallabróðir samdi lagið en textan gerði Magnús Þór Sigmundsson. Fjallabræður munu flytja lagið ásamt Lúðrasveit Vestmannaeyja, en áður fyrr var þjóhátíðarlagið ávalt samið fyrir lúðrasveitina, og því er verið að leita aftur í upprunan með þessu lagi.