Karlakórinn Fjallabræður og Lúðrasveit Vestmannaeyja blása til sannkallaðra stórtónleika á Goslokum í byrjun júlí. Tónleikarnir verða haldnir í stóra sal Íþróttamiðstöðvarinnar en í vetur voru haldnir álíka tónleikar í íþróttahúsinu við Torfnes á Ísafirði, auk þess sem kórinn og sveitin troðfylltu Háskólabíó á tvennum tónleikum í nóvember. Forsala miða á tónleikana hefst á morgun, föstudaginn 7. júní í Bensínsölunni Klett við Strandveg.