Það verður nóg um að vera um í tengslum við Þrettándahátíð því skipulögð Þrettándagleði verður dagana 7. til 10. janúar 2010. Gleðin hefst á fimmtudagskvöld með Eyjakvöldi á Kaffi Kró þar sem tónlistarmenn Eyjanna taka lagið. Á föstudag verður Grímuball Eyverja í Höllinni þar sem verðlaun verða veitt fyrir líflegustu framkomuna, besta heimahannaða búninginn og besta keypta búninginn.