Eitt af því sem einkennir Vestmannaeyinga er ótrúlegt keppnisskap. �?essa ástríðu er hægt að virkja til að fegra litlu, grænu svæðin innan hverfanna sem hafa drabbast niður. Hvernig væri að fá íbúa hverfanna til hugmyndavinnu og framkvæmda og hafa bein áhrif á umhverfi sitt?
Hver man ekki eftir �??�?t á róló�?� og �??Götugrilli�?�? Hvernig væri ef hvert hverfi fengi sitt eigið útisvæði þar sem þessir hlutir yrðu ekki bara nostalgía heldur raunveruleikinn? �?essu er hægt að ná fram á mjög einfaldan og skemmtilegan hátt. Við fáum fólkið til þess að vinna með okkur. Gefum okkur dæmi um svæðið t.d. milli Hrauntúns og Höfðavegar. �?ar var alltaf leikvöllur þar sem krakkarnir í hverfinu komu saman og léku sér öllum stundum. Í dag hafa öll leiktæki þar verið fjarlægð og þetta svæði í órækt. Með lítilli fyrirhöfn er hægt að koma þessu svæði, sem og öðrum, aftur í fjölskylduvænt horf. Hverfið, í samvinnu við bæinn, mundi þannig ákveða hvernig svæðið yrði skipulagt út frá fjármagni sem væri eyrnamerkt hverfinu. Framkvæmdin yrði svo sameiginlega í höndum íbúa hverfisins og bæjaryfirvalda. Með þessu móti gæti hverfið fengið sem mest fyrir peninginn og haft áhrif á sitt nánasta umhverfi. �?etta þyrfti ekki að vera kostnaðarsamt og væri einnig til þess fallið að græða upp þessi svæði í hverfunum. Á haustmánuðum yrðu svo þessi svæði skoðuð og verðlaunum úthlutað fyrir bestu framkvæmdina. Hverfið græðir fallegt svæði, bærinn virkjar mannauðinn sinn og krakkarnir leika sér, sáttir og ánægðir.
Gunnar �?ór Guðbjörnsson
skipar 4. sæti Eyjalistans
Haraldur Ari Karlsson
skipar 11. sæti Eyjalistans