Nú hafa nemendur 4. og 7. bekkjar fengið sendar niðurstöður úr samræmdum prófum. Gaman er að segja frá því að meðaleinkunn nemenda í 4. bekk í Grunnskóla Vestmannaeyja er vel yfir landsmeðaltali bæði í íslensku og stærðfræði. Landsmeðaltalið í íslensku er 6,4 en meðaleinkunnin hér er 6,7. Sú einkunn er einmitt meðaltalseinkunn á Norðurlandi eystra, sem er það landssvæði sem skorar hæst að þessu sinni, í íslensku í 4. bekk.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst