Persónuleg þjónusta og snyrtilegt umhverfi á tjaldsvæðinu
Katrín Harðardóttir, rekstraraðili tjaldsvæðisins.

Tjaldsvæði Vestmannaeyja býður upp á flotta aðstöðu í og við Þórsheimilið og inni í Herjólfsdal og hefur hlotið mikið lof á meðal gesta. Á báðum stöðum stendur gestum til boða hlýleg og notaleg aðstaða með eldhúsi, borðsal, sturtum, snyrtihorni og salernum. Við heyrðum í Katrínu Harðardóttur öðrum rekstraraðila tjaldsvæðisins og spurðum hana út í reksturinn, undirbúninginn fyrir annasömustu dagana og hvað hún telji helst skýra þær góðu umsagnir sem gestir hafa látið í ljós. „Við tókum við tjaldsvæðinu síðasta vor, svo þetta er okkar annað sumar. Ég tel að helstu ástæður fyrir ánægju gesta okkar sé sú persónulega þjónusta sem við veitum, við erum með mikla viðveru á svæðinu og veitum því persónulega þjónustu og leggjum mikla áherslu á hreinlæti og góða umgengni utan- sem innandyra“ segir Kata eins og hún er oftast kölluð. ,,Gestir okkar eru fjölbreyttur hópur, við fáum mikið af Íslendingum í tengslum við stóru viðburðina hjá ÍBV, TM-mótið, Orkumótið og Þjóðhátíð. Þess fyrir utan eru gestir okkar að mestu erlendir ferðamenn.“ Þó koma fleiri Íslendingar þegar vel viðrar eða í tengslum við aðra viðburði í Eyjum.

Skipulag, öryggi og viðvera lykilatriði

Þegar mikill fjöldi gesta er á svæðinu þarf gott skipulag og samstarf. „Við erum þrjú sem vinnum á tjaldsvæðinu en bætum við starfsfólki þegar við þurfum á því að halda. Þetta byggist allt á góðu skipulagi og verkaskiptingin er skýr hjá okkur Alla, ég sé um allt innandyra og hann sér um svæðið úti. Það eina sem við höfum ekki náð að stýra er veðrið en við erum orðin svakalega góð í að stýra hugarfarinu gagnvart því og finna tjaldgestum okkar svæði háð veðri og vindum. Tjaldsvæði Vestmanneyja er stórt, kringum Þórsheimilið eru 3 svæði, auk Samskipavallarins en þar er nú verið að koma fyrr varanlegum vatnssalernum og einnig inni í Herjólfsdal. „Það hefur í raun gengið allt ótrúlega vel til þessa og við höfum tekið eftir að þegar allt er snyrtilegt og fínt þegar fólk mætir, þá er gengið betur um.“ Nýverið höfum við bætt við gistimöguleikum. Við bjóðum nú upp á gistingu í Þjónustuhús tjaldsvæðisins eru til fyrirmyndar. suðurenda Þórsheimilisins í þremur herbergjum. Í boði er þriggja manna, fjögurra manna og sex manna herbergi. Þetta er skemmtileg viðbót við okkar þjónustu,“ bætir Kata við að lokum. Það er nokkuð ljóst að gestir sem heimsækja tjaldsvæði Vestmannaeyja mega eiga von á góðu og jákvæðu viðmóti ásamt snyrtilegri aðstöðu.

Nýjustu fréttir

ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum
Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.