Hvað lognið getur nú farið hratt yfir …

Síðan hafa hvellirnir orðið nokkuð margir og við höfum fengið hviður fyrir allan peninginn… Í dag hafa verið stöðugar fréttir af óveðrinu sem gengið hefur yfir landið. Bein útsending úr Skógarhlíðinni þar sem höfuðstöðvar björgunarsveitanna eru. Skipt í vesturbæinn, upp í Breiðholt og út á Nes. Allt að gerast, þak að fjúka, tré að brotna […]

Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna bruna

Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði nú síðdegis mann þann sem lögreglan í Vestmannaeyjum heftur haft í haldi í gæsluvarðhald til mánudags 17. desember.Maðurinn hefur verið í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum síðan í gær vegna rannsóknar á brunanum í Fiskiðjunni aðfaranótt s.l. föstudags. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri hefur sagst hafa verið í húsinu skömmu áður en eldur […]

Jólatónleikar í Landakirkju í kvöld

Jólatónleikar Kórs Landakirkju verða í kvöld í Landakirkju. Einsöngvarar með kórnum eru Sigrún Hjálmtýsdóttir og Helga Jónsdóttir og stjórnandi verður Guðmundur H. Guðjónsson. Tónleikarnir hefjast kl 20:30.     (meira…)

Akureyri lagði Eyjamenn

Akureyri lagði ÍBV 40:26 í N1 deild karla í handknattleik í dag. Staðan í leikhléi var 19:14 fyrir Akureyri sem skaut upp fyrir Aftureldingu í þriðja nesta sæti deildarinnar. Afturelding er þess stundina að leika við Stjörnuna og gæti farið upp fyrir Akureyri á ný.. (meira…)

Gæsluvarðhalds krafist í kjölfar brunans í Eyjum

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum mun í dag fara fram á í Héraðsdómi Suðurlands að maður sem er í haldi lögreglunnar vegna brunans í Fiskiðjunni í fyrrinótt verði úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna. Í tilkynningu frá lögreglunni í Eyjum í dag segir ennfremur: Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur verið að rannsaka upptök brunans í Fiskiðjunni sem tilkynntur var […]

Vestmannaeyjabær sýnilegur í fjölmiðlum

Sýnileiki er sveitarfélögum og fyrirtækjum afar mikilvægur.  Það er því fróðlegt að skoða hversu sýnilegur Vestmannaeyjabær hefur verið í fjölmiðlum núna í upphafi desember.  Samkvæmt úttekt á þessu hefur Vestmannaeyjabær nú þegar verið í fréttum 355 sinnum á þessu ári, 136 sinnum í ljósvakamiðlum og 219 sinnum í prentmiðlum.   Hér er átt við miðla aðra […]

Kennari sagður slíta fræðslu úr samhengi

Barnaskólakennari telur fyrirlesara Alnæmissamtakanna hafa verið utanvelsæmismarka á fræðslufundi með unglingum í Vestmannaeyjum. Fulltrúisamtakanna segir kennarann slíta orð fyrirlesarans úr samhengi. Birna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri fræðsluverkefnis Alnæmissamtakanna, segir Gísla Óskarsson, barnakennara í Vestmannaeyjum, slíta orð fyrirlesara samtakanna úr samhengi í kvörtunum sínum um fræðslu sem Alnæmissamtökin veittu unglingunum í níunda og tíunda bekk í Eyjum í […]

Handtekinn vegna bruna í Fiskiðjunni

Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók nú undir kvöld mann sem talinn er hafa verið í gamla Fiskiðjuhúsinu við Ægisgötu skömmu áður en eldur kom þar upp í nótt. Skýrsla verður tekin af honum í kvöld vegna málsins. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að hún hafi í dag yfirheyrt um tíu unga menn í tengslum við […]

Margir yfirheyrðir vegna brunans í Eyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur í dag yfirheyrt hátt í tíu unga menn vegna brunans í gömlu Fiskiðjunni í nótt. Talið er að kveikt hafi verið í, þótt ekki sé það óyggjandi, en enginn ákveðinn liggur undir grun um verknaðinn. Tilkynning um eldinn barst á fjórða tímanum í nótt. Allir sem lögreglan hefur haft í haldi […]

Jólapartý Minniboltans

Á morgun laugardag, er glæsilegt jólapartý hjá Minniboltanum. Verður farið í ýmsa skotleiki eins og troðslu, víta og 3ja stiga keppni sem og hörku þrautakeppni verður í gangi. Einnig verður farið í stingerkeppni og verða flott verðlaun fyrir hinar og þessar þrautir. Dregið verður í happdrætti og einnig verða veitt verðlaun fyrir bestu mætingarnar það […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.