Margir yfirheyrðir vegna brunans í Eyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur í dag yfirheyrt hátt í tíu unga menn vegna brunans í gömlu Fiskiðjunni í nótt. Talið er að kveikt hafi verið í, þótt ekki sé það óyggjandi, en enginn ákveðinn liggur undir grun um verknaðinn. Tilkynning um eldinn barst á fjórða tímanum í nótt.

Allir sem lögreglan hefur haft í haldi í dag og yfirheyrt hafa viðurkennt að hafa verið á vettvangi í nótt. Ekki liggur fyrir hver eða hverjir hafi verið þar síðastir á ferli, sagði Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.