Aftakaveður

Herjólfur liggur enn við bryggju í Eyjum en hliðarskrúfa skipsins er biluð. Farþegar skipsins bíða um borð í skipinu. Færist áætlun skipsins sem því nemur. Hellisheiðin er lokuð og mjög slæm færð er í Þrengslunum.   Björgunarsveit Vestmannaeyja hafði skv. heimildum eyjar.net í nógu að snúast í nótt en meðal annars fuku þakplötur af Félagsheimilinu í Rauðagerði. […]

Kemur ekkert annað til greina en að ná sæti í 1. deild.

Í dag birtum við leikmannakynningu ÍBV í körfubolta. Síðustu helgi áttust við í bikarkeppni KKÍ ÍBV og Keflavík og því er viðeigandi að birta kynningu á Sverri Marinó en hann er fæddur í Keflavík og með Keflavík byrjaði hann að æfa körfubolta. Sverrir Marinó er búsettur á Seltjarnarnesi en hann er í fjarnámi við Kennaraháskóla […]

Nú byrjar gamanið

Þegar ég var ungur drengur, daginn fyrir fyrsta skóladaginn minn, sagði ég við mömmu að mig langaði ekkert að byrja í skólanum, að ég kynni ekkert að reikna og langaði ekki að gera eitthvað sem ég kynni ekki að gera. Þá útskýrði hún fyrir mér undur þess að læra eitthvað, að ég væri að fara […]

Björgunarfélag Vestmannaeyja kallað út í gærkvöldi

Í gærkvöldi voru félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja ræstir út vegna mjög slæms veðurs. Útihús fauk við Hásteinsveg og þakplötur og klæðningar á húsum í eyjum höfðu losnað. Um 20 félagsmenn Björgunarfélags Vestmannaeyja unnu við að aðstoða beiðnum bæjarbúa.   Samkvæmt vef Pálma Óskarssonar veðurathugunarmanns á Stórhöfða má finna upplýsingar um að mesti vinhraði í vindhviðu […]

Góður liðsstyrkur væntanlegur í meistaraflokkinn

Sigurjón Örn Lárusson heitir sá kappi og er 195cm á hæð. Spilar hann sinn fyrsta leik fyrir félagið strax eftir áramót. Mun Sigurjón styrkja liðið mikið og ekki verra að fá fleiri góða á æfingarnar hér í eyjum.Næsta sunnudag mun Sigurjón hinsvegar leika sinn síðasta leik fyrir körfuknattleikslið Stjörnunnar þar sem hann hefur ákveðið að […]

Herjólfur í slipp 4.desember

Samkvæmt heimildum www.eyjar.net kom upp bilun um borð í Herjólfi og þarf skipið að fara í slipp í Hafnarfirði næsta þriðjudag. Mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar á þriðjudaginn og halda svo til Hafnarfjarðar þar báturinn fer í viðgerð. Áætlað er að viðgerðin taki minnst 2 daga og er vonast til að Herjólfur fari frá Þorlákshöfn […]

Góður liðsstyrkur væntanlegur í meistaraflokkinn

Sigurjón Örn Lárusson heitir sá kappi og er 195cm á hæð. Spilar hann sinn fyrsta leik fyrir félagið strax eftir áramót. Mun Sigurjón styrkja liðið mikið og ekki verra að fá fleiri góða á æfingarnar hér í eyjum.Næsta sunnudag mun Sigurjón hinsvegar leika sinn síðasta leik fyrir körfuknattleikslið Stjörnunnar þar sem hann hefur ákveðið að […]

Landeyjahöfn í Bakkafjöru í undirbúningi

Undirbúningur að gerð hafnar í Bakkafjöru í Austur-Landeyjum stendur nú yfir og eru ýmis atriði skipulags- og umhverfismála nú til meðferðar hjá þar til bærum yfirvöldum. Gert er ráð fyrir að ný ferjuleið milli Vestmannaeyja og lands verði komin á síðla árs 2010. Landeyjahöfn verður skammt sunnan og austan flugvallarins á Bakka og rétt vestan […]

Landeyjahöfn í Bakkafjöru í undirbúningi

Undirbúningur að gerð hafnar í Bakkafjöru í Austur-Landeyjum stendur nú yfir og eru ýmis atriði skipulags- og umhverfismála nú til meðferðar hjá þar til bærum yfirvöldum. Gert er ráð fyrir að ný ferjuleið milli Vestmannaeyja og lands verði komin á síðla árs 2010. Landeyjahöfn verður skammt sunnan og austan flugvallarins á Bakka og rétt vestan […]

Leikir helgarinnar hjá yngri flokkum ÍBV

Hanbolti www.ibv.is2.flokkur karla fer til Reykjavíkur á föstudaginn og spilar Bikarleik á móti KR í DHL-Höllinni klukkan 16.45. KR er ekki með lið í Íslandsmóti en tekur þátt í bikarnum, ÍBV hefur ekki spilað leik frá því 4.nóvember þegar þeir unnu Fjölni 31-13. 4.flokkur Karla á leik við Fylki hér heima á laugardaginn klukkan 14.00. Strákarnir hafa […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.