Eru Bæjarveitur Vestmannaeyja framtíðin?

Í sumar seldi Vestmannaeyjabær sem kunnugt er hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja til Geysir Green Energy fyrir á fjórða milljarð króna. Síðan þá hefur farið fram fjörug umræða um hvað gera skuli við alla þessa peninga. Sýnist sitt hverjum og bæjarstjórn hefur lýst því yfir að ekki verði rasað um ráð fram við ráðstöfun þeirra. […]
Getraunastarfið hafið

Jæja góðir hálsar þá er getraunastarfið hafið og fór fyrsta vika í hópaleik haustsins fram um helgina og var árangur þokkalegur. Eftir fyrstu vikuna þykir liðið Pint of Foster's líklegast til að standa uppi sem sigurvegari, en það er en langt og strangt getraunahaust framundan og því getur ýmiselgt gerst. Spilaðar verða 12 vikur og […]
Stórhuga feðgar ætla að opna fullkomið upptökustúdíó í eyjum

Nýverið festi ljósa -og hljóðkerfaleigan Span kaup á fasteigninni Gamla Betel (Leikskólinn) og þar ætla þeir sér að byggja upp fullkomið upptökustúdíó, eyjar.net heyrði í þessum ofurhugum og vildi fá að vita meira um þessa stórtæku hugmynd. Eigendur ljósa-og hljóðkerfaleigunnar eru feðgarnir Ólafur Guðjónsson (Óli áHvoli/Gæfunni) og Árni Óli. Eyjar.net tók púlsinn á framkvæmdarstjóra Span […]
Stoppdagar Herjólfs

25. september verður viðhaldsdagur Herjólfs og munu siglingar falla niður þennan dag. Forsvarsmenn Herjólfs vona að þetta valdi ekki mikilli röskun fyrir viðskiptavini. (meira…)
Ekki krafist gæsluvarðhalds yfir manni sem var handtekinn vegna nauðgunarkæru
Maður sem var handtekinn í gærkvöldi af lögreglunni á Selfossi vegna nauðgunarkæru konu á fertugsaldri í Vestmannaeyjum í gærmorgun var í kvöld sleppt úr haldi lögreglunnar á Selfossi. Rannsókn málsins heldur áfram og hefur hinn kærði verið boðaður til frekari yfirheyrslu á morgun. Unnið er að skýrslutöku af vitnum og beðið niðurstöðu rannsókna, samkvæmt upplýsingum […]
Kærði nauðgun til lögreglunnar

Kona á fertugsaldri kærði nauðgun til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Fljótlega beindist grunur að erlendum ríkisborgara. Lögreglan á Selfossi handtók hann að kvöldi sama dags. Maðurinn hafði farið frá Vestmannaeyjum með Herjólfi síðdegis á laugardag. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, er nú í haldi lögreglunnar á Selfossi. Síðar í dag verður tekin ákvörðun um […]
Nóg að gerast

Um helgina voru æfinga / vináttuleikir við UMFH sem eru frá Flúðum. Komu hingað 17 leikmenn og 2 þjálfarar. Voru þetta kurteisir krakkar og nokkrir efnilegir í þeirra herbúðum en þar má helst nefna 2 leikmenn 10.flokks en það eru stelpur sem spiluðu með strákunum. Stóðu þær sig mjög vel og eiga framtíðina fyrir sér. […]
Kristján Möller játar mistök sín

Kristján Möller, samgönguráðherra játar í Blaðinu í dag að það hafi verið mistök að ætla að gera Einar Hermannsson, skipaverkfræðing að blóraböggli í Grímseyjarferjumálinu. Hann hefur þegar beðið Einar afsökunar á málatilbúnaðinum á fundi í ráðuneytinu. Það heyrir til undantekninga að stjórnmálamenn íslenskir, hvað þá ráðherrar, játi þegar þeim verða á mistök. Þau tilfelli þar […]
Upptökustúdíó að opna í Vestmannaeyjum

Nýlega festi ljósa- og hljóðkerfaleigan Span kaup á fasteign í Vestmannaeyjum með þeim tilgangi að opna hér fullkomið upptökuver (stúdíó), www.eyjar.net er að sjálfsögðu komið í málið og mun birta viðtal við þessa frumkvöðla sem standa að þessu krefjandi verkefni. Upptökuverið mun án efa vera vítamínsprauta fyrir tónlistarfólk í Vestmannaeyjum og gefa þeim fjölmörgu efnilegu […]
IBV á enn möguleika

Fjölnir og Grindavík eru kominn upp í Landsbankadeild karla í knattspyrnu þó ein umferð sé enn eftir af 1. deildinni. Bæði lið unnu sína leiki í dag og tryggðu sæti sitt í efstu deild. Njarðvík bjagaði sér af hættusvæðinu með góðum sigri á Fjarðabyggð. Eyjamenn eygja enn von um sæti í efstu deild en þurfa […]