Ufsaskalli um helgina

Golfmótið Ufsaskalli verður haldið í fimmta sinn á golfvellinum í Vestmannaeyjum á morgun, .laugardag. Mótið er styrktarmót og rennur allur ágóði mótsins í gott málefni í Eyjum en í fyrra keyptu aðstandendur mótsins heitan pott og gáfu Sambýlinu, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Eins og í öllum góðum golfmótum, er golfið ekki aðalatriðið, […]
Mæta Breiðabliki á útivelli í kvöld

ÍBV mætir Breiðabliki í kvöld á Kópavogsvelli í 7. umferð Pepsídeildar kvenna. Um er að ræða toppleik því Breiðablik er í öðru sæti deildarinnar með 15 stig og ÍBV í því þriðja með 13 stig. Eyjaliðið glímir hins vegar við meiðsli lykilmanna og vantar t.d. þær Vesna Smiljkovic og Ana Lopez, sem eru báðar meiddar. […]
Gott að styrkja gott málefni og skemmta sér

Í kvöld, föstudaginn 14. júní verða haldnir tónleikar í Bæjarleikhúsinu til styrktar Einhugar, foreldrafélagi einhverfra barna í Vestmannaeyjum. Allur ágóði tónleikanna rennur til félagsins en á tónleikunum koma ýmsir tónlistarmenn Vestmannaeyja fram. (meira…)
David James með frábæra markvörslu á Ísafirði

David James sýndi af hverju hann var um árabil aðalmarkvörður enska landsliðsins í bikarleiknum á Ísafirði í gær. Í stöðunni 0:1 fengu Ísfirðingar hornspyrnu og danski miðvörðurinn Dennis Nielsen átti fastan skalla af stuttu færi, sem í flestum tilvikum hefði endaði í netinu. En James kastaði sér á boltann og bjargaði á elleftu stundu. Einhverjir […]
Fyrsti dagur Pæjumóts gekk vel

Pæjumótið hófst í gær og var spilað á öllum völlum frá morgni til kvölds. Í gærkvöldi var svo setningarhátíð Pæjumótsins en fastur liður setningarinnar er Idolkeppni liðanna og sáust mörg skemmtileg atriði. Fyrstu leikirnir í dag hófust klukkan 8:20 og verður leikið fram á kvöld, þegar landsleikur, grillveisla og diskósund tekur við hjá stelpunum. (meira…)
Hæglætisveður framundan en lítil sól

„Mánudagurinn (10.júní) var hlýr á landinu, hlýjasti dagur ársins á um 40 prósentum allra veðurstöðva á landinu þar á meðal Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði þar sem hitinn komst í 22,8 stig á sjálfvirku stöðinni, 21,5 á þeirri mönnuðu. Það er hæsti hiti sem mælst hefur á landinu það sem af er ári,“ segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur, […]
Elísa inn í landsliðshópinn fyrir æfingaleik

Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði knattspyrnuliðs ÍBV var í gær kölluð inn í leikmannahóp íslenska A-landsliðsins sem mætir Dönum í æfingaleik ytra næsta fimmtudag. Elísa var upphaflega ekki í hópnum en var í leikmannahópi Íslands þegar liðið mætti Skotum um síðustu mánaðarmót. (meira…)
ÍBV komið í 8-liða úrslit eftir sigur á BÍ/Bolungarvík

BÍ/Bolungarvík tók á móti ÍBV í kvöld. ÍBV telfdi fram sínu sterkasta liði fyrir utan Tonny Mawejje sem er staddur í Úganda í landsliðsverkefni. (meira…)
Eyjamenn spila á Ísafirði í kvöld

Karlalið ÍBV mætir BÍ/Bolungarvík í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld. Leikurinn fer fram á Torfnesvegi á Ísafirði og hefst klukkan 18:00, svona ef einhverjir vilja skella sér á völlinn. Liðin mættust í Deildarbikarnum í vetur og þá hafði ÍBV betur, 1:0 en markið gerði Aaron Spear. (meira…)
Stefnir á siglingar í Landeyjahöfn í vetur

Sigurmundur Gísli Einarsson, eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Viking Tours, er búinn að kaupa nýjan bát og stefnir á að sigla í Landeyjahöfn næsta vetur. „Ég er búinn að fá leyfi hjá Siglingastofnun fyrir siglinum í Landeyjahöfn næsta vetur og er búinn að kaupa bátinn. Ég þarf bara að sækja hann og láta breyta honum til að uppfylla […]