Bærinn framselur kauptilboð í Portland VE

Í framhaldi af tilkynningu um að Vestmannaeyjabær hafi nýtt sér forkaupsrétt á dragnótaskipinu Portland VE, óskuðu tvö útgerðarfyrirtæki í bænum eftir viðræðum um að Vestmannaeyjabær myndi framselja kauptilboðið til sín. Það hefur nú gengið eftir en útgerðarfyrirtækin tvö, Dala-Rafn og Glófaxi eru bæði rótgróin fjölskyldufyrirtæki í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bæjaryfirvöldum. (meira…)
Einstakt skip með einstaka sögu

Allt stefnir í að aflaskipið Sigurður VE verði selt í brotajárn til Danmerkur en samkvæmt heimildum Eyjafrétta er undirbúningur hafinn fyrir siglingu skipsins út. Í vikublaði Eyjafrétta er farið aðeins yfir glæsilega sögu skipsins en þar kemur fram að Sigurður VE var smíðaður í Seebeck Werft skipasmíðastöðinni í Bremerhaven í Þýskalandi árið 1960 og var […]
Vestmannaeyjabær hyggst nýta forkaupsrétt

Nú fyrir skömmu lauk aukafundi bæjarráðs Vestmannaeyja þar sem samþykkt var að neyta þess forkaupsréttar sem sveitarfélögum er áskilinn í 12. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Þar með gengur Vestmannaeyjabær inn í fyrirhugaða sölu á dragnótaskipinu Portland VE97 ásamt með öllu sem því fylgir og fylgja ber að engu undanskildu þ.m.t. tilheyrandi aflahlutdeild skipsins […]
�?nnur ferð Herjólfs fellur niður í dag

Önnur ferð Herjólfs fellur niður í dag. Ölduhæð í Landeyjahöfn var 2,5 metrar klukkan tíu í morgun og vindur 20 til 25 metrar á sekúndu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip. Athuga á með þriðju ferð skipsins klukkan 13:30 en áætlað er að sigla frá Eyjum 14:30 og frá Landeyjahöfn 16:00. (meira…)
Hjálpsamur markvörður

Englendingurinn David James, markvörður ÍBV í fótbolta, þykir hafa smellpassað inn í samfélagið í Vestmannaeyjum eftir að hann fluttist þangað í vor. Til marks um góðmennsku hans og gott lundarfar var hann staddur í versluninni Krónunni á dögunum. Eldri kona stóð við afgreiðslukassann og dundaði sér ein við að setja matvörur ofan í poka. Henni […]
Vestmannaeyingar afburða skemmtilegt fólk

Þrjár myndlistarkonur, þær Guðmunda Kristinsdóttir, Lilja Bragadóttir og Rannveig Tryggvadóttir, opna síðdegis í dag, fimmtudag málverkasýningu í sal Akóges. Opnun sýningarinnar er klukkan 18:00 en á sýningunni verður að finna verk eftir þær þrjár og verður sýningin opin alla helgina. (meira…)
Eyjamenn áfram í bikarnum

Aaron Spear, sem var í fyrsta sinn í byrjunarliði ÍBV í sumar kom ÍBV yfir á 23. mínútu og staðan í hálfleik var 0:1 ÍBV í vil. Þróttur jafnaði hins vegar metin í upphafi síðari hálfleiks og var staðan jöfn þar til um tólf mínútur voru eftir en þá settu Eyjamenn í gír og tryggðu […]
Eyjapeyi fljótastur úr fötunum

Eyjapeyinn Nökkvi Dan Elliðason, sonur Elliða Vignissonar bæjarstjóra hefur unnið óformlegt Íslandsmót í því að fara úr fötunum á sem skemmstum tíma. Þetta kemur fram á vefnum Menn.is. Faðir Nökkva er hóflega sáttur við þetta framtak sonarins. „Ég hef reynt að veita syni mínum stuðning í öllu sem hann hefur metnað fyrir en…. Elsku Nökkvi […]
Frönsk skúta kom við í Eyjum

Franska skútan Étoile, eða Stjarnan kom við í Eyjum í vikunni. Skútan heimsækir í ferð sinni til Íslands þrjá staði þar sem reistir hafa verið franskir spítalar, Vestmannaeyjar, Reykjavík og Fáskrúðsfjörð. Spítalinn sem reistur var í Vestmannaeyjum er í dag íbúðarhús og stendur við Kirkjuveg 20 og gengur daglega undir nafninu Gamli spítalinn eða Gamló, […]
Eyjakonur duttu í lukkupottinn

Kvennalið ÍBV mætir Hetti frá Egilsstöðum í 16 liða úrslitum Borgunarbikarsins en dregið var í dag. Höttur leikur í B-riðli 1. deildar og er búið að spila einn leik, gegn nágrönnum sínum í Fjarðarbyggð og unnu þann leik 0:3. Leikur ÍBV og Hattar fer fram í Eyjum, sem er klárlega kostur, þótt ferðakostnaðurinn sé mikill […]