Sönghópur Leikfélagsins með sína fyrstu tónleika í kvöld

Í kvöld mun Sönghópur Leikfélagsins halda sína fyrstu tónleika. Hópurinn var stofnaður í október í fyrra eftir að hafa tekið þátt í stórtónleikunum Ljós í Leikhúsið og hefur hann æft einu sinni í viku síðan. Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg og munu einsöngvarar úr hópnum og leikfélaginu stíga á stokk. Stjórnandi er Sólveig Unnur Ragnarsdóttir […]
ÍBV sækir �?rótt heim í bikarnum

Nú rétt í þessu var að ljúka bikardrætti í bikarkeppni karla í knattspyrnu. Dregið var í 32ja liða úrslitum en úrvalsdeildarliðin voru öll í hattinum. ÍBV mætir 1. deildarliði Þróttar Reykjavík á heimavelli Þróttara í Laugardalnum en áætlað er að leikir í 32ja liða úrstlitum fari fram miðvikudaginn 29. og fimmtudaginn 30. maí. (meira…)
Of mikil lundaveiði í Eyjum

Doktor í líffræði telur að undanfarna áratugi hafi lundaveiði í Vestmannaeyjum verið að jafnaði helmingi meiri en sjálfbær viðmið segja til um. Þetta kemur fram í niðurstöðum í rannsókn Dr. Erps Snæs Hansens, líffræðings hjá Náttúrustofu Suðurlands, á lundastofninum í Vestmannaeyjum. „Veiðar hafa verið of miklar síðustu hálfa öld,“ segir Erpur. (meira…)
ÍBV átti ekki í erfiðleikum með HK/Víking

ÍBV tók á móti nýliðum HK/Víkings í 2. umferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Það tók ÍBV einungis 11 mínútur að komast í 3-0, en lið HK/Víkings komst hvorki lönd né strönd. Shaneka Gordon átti mjög góðan leik fyrir ÍBV í dag og skoraði þrennu en hefði auðveldlega getað skorað fleiri mörk og átti hún meðal […]
�?órhildur aftur í ÍBV

Þórhildur Ólafsdóttir, fyrrum fyrirliði kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu, hefur ákveðið að ganga aftur í raðir ÍBV. Þórhildur skipti yfir í Þór/KA fyrir síðasta tímabil og varð m.a. Íslandsmeistari með liðinu. Koma Þórhildar er mikill happafengur fyrir ÍBV, enda leikmannahópur liðsins mjög þunnskipaður, ekki síst þar sem nú er endanlega ljóst að frænka Þórhildar og helsti […]
Slapp betur en á horfðist eftir að hafa fengið sýru í auga

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og þó nokkur ölvun um helgina og töluvert um stympingar. Engar kærur liggja þó fyrir enn sem komið er og virðist sem lítil sem engin meiðsli hafi hlotist í þessum stympingum. Flest tengdust þessar stympingar skemmtanalífinu sem fór a.ö.l ágætlega fram. (meira…)
Framhaldsaðalfundur á miðvikudag

Boðað hefur verið til framhaldsaðalfundar ÍBV-íþróttafélags á miðvikudaginn og hefst hann klukkan 19:30. Fundurinn verður í Týsheimilinu og á dagskrá hans er afgreiðs lagabreytinga frá síðasta fundi, kosning stjórnar og önnur mál. (meira…)
Florentina ekki með ÍBV næsta vetur?

Samkvæmt heimildum Handbolta.org er Florentina Stanciu, markvörður ÍBV, að öllum líkindum yfirgefa félagið í sumar. Í hennar stað mun Eyjakonan Dröfn Haraldsdóttir koma. Sindri Ólafsson, formaður ÍBV staðfesti þetta við Handbolti.org í hádeginu. Að hans sögn var Florentina ekki sátt með þann samning sem ÍBV bauð henni og mun að öllum líkindum leita á önnur […]
Frábær stemmning í gær

Eins og áður hefur komið fram, lagði ÍBV Breiðablik að velli í gær 4:1. Stemmningin á Hásteinsvelli hefur sjaldan verið jafn góð og í gær og tóku áhorfendur virkan þátt í leiknum. Í annað sinn mættu yfir eitt þúsund manns á Hásteinsvöll en áhorfendur í gær voru 1112 talsins og 1055 í leiknum gegn ÍA. […]
Dansað í Bárugötunni

Nemendur og starfsfólk í 1. – 5. bekk ætla að halda upp á Alþjóðlega dansdaginn með því að dansa í Bárugötunni. Til stóð að gera það á föstudaginn kl. 11:30, en sökum vætu var því frestað fram yfir helgi. Nú hefur verið ákveðið að dansinn skuli fara fram í dag mánudag kl. 11.30. (meira…)