Einstök byrjun hjá þjálfara í Eyjum

Áður en Hermann Hreiðarsson settist í þjálfarastólinn í Vestmannaeyjum fyrir þetta tímabil hafði engum þjálfara Eyjaliðsins tekist að landa sex stigum í fyrstu tveimur leikjum sínum með liðið í efstu deild. Nokkrir höfðu náð í fjögur stig en Hermann varð í gær sá fyrsti til að ná í sex stig af sex mögulegum þegar ÍBV […]
Blikar brotlentu gegn baráttuglöðum Eyjapeyjum

ÍBV vann í dag laglegan sigur á Breiðabliki í 2. umferð Pepsídeildar karla en liðin mættust á Hásteinsvelli. Leikurinn var mjög fjörugur og nokkur hiti í leikmönnum, sem þó var innan skynsamlegra marka. Alls urðu mörkin fimm talsins í leiknum og fimm sinnum í viðbót small boltinn í markstöngunum. Lokatölur urðu 4:1 fyrir ÍBV, sem […]
Eyjamenn sönkuðu að sér verðlaununum

Lokahóf HSÍ fór fram í gærkvöldi í Reykjavík. Fjölmörg verðlaun voru veitt á hófinu en ÍBV fékk nokkur verðlaun. T.d. fékk ÍBV svokallaðan unglingabikar HSÍ, sem er veittur því félagi sem þykir standa sig vel í þjálfun ungmenna. Þá fékk Guðbjörg Guðmannsdóttir Háttvísisverðlaun og Florentina var valin besti makrvörðurinn. Það vekur hins vegar athygli að […]
Eyjamenn taka á móti Blikum í dag

Karlalið ÍBV í knattspyrnu leikur í dag gegn Breiðabliki á Hásteinsvelli. Leikur liðanna hefst klukkan 17:00 en bæði lið eru með þrjú stig eftir fyrstu umferð Íslandsmótsins. Eyjamenn lögðu ÍA 1:0 í fyrsta leiknum en á sama tíma lagði Breiðablik Þór Akureyri 4:1. Það mætti því reikna með því að það reyni meira á vörn […]
Stuðningsmenn hittast á 900 grillhús

Stuðningsmenn ÍBV hafa ákveðið að hita upp fyrir leikinn gegn Breiðabliki í dag með því að hittast á veitingastaðnum 900 grillhúsi, við Vestmannabraut. Hólmgeir Austfjörð, eigandi staðarins verður með sérstakt tilboð fyrir gull, silfur og brons korthafa ÍBV. „Eftir hittinginn á 900 er svo ætluninn að labba saman á völlinn og sitja saman í stúkunni […]
Kajakræðarinn Guðni Páll réri til Eyja í kvöld

Kajakræðarinn Guðni Páll Viktorsson réri inn í Vestmannaeyja höfn klukkan rúmlega átta í kvöld. Guðni Páll er í svokölluðum Lífróði en hann ætlar að sigla á kajak hringinn í kringum landið en tilgangurinn er að safna fé til styrktar Samhjálp. (meira…)
Íbúakosning um hótel við Hástein

Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur samþykkt að fram fari íbúakosning um byggingu hótels við Hástein og fer könnunin fram 21.-22.maí nk. Til að nýta atkvæðarétt sinn eru tvær leiðir í boði. Annars vegar er hægt að kjósa í Safnahússinu frá 08-16 báða dagana og hins vegar er um að ræða rafræna kosningu. Til þess að geta kosið […]
Áfram �?ór!

Mér finnst ekki langt síðan að maður atti kappi við Þórara uppi á Maló – hörkutólin Helga Braga og Nökkva Sveins og varnartröllin Hinna Bjarna og Nonna Loga, valmennið sem stendur nú vaktina á grænum grundum almættisins. Blessuð sé minning hans. Baráttan var hörð, en leikgleðin í fyrirrúmi og hvorki spáð í blóðug hné né […]
Hungraðir og þyrstir fari saddir og ánægðir

Í aldarfjórðung hefur Birgir Sveinsson staðið vaktina í Tvistinum sem er skyndibitastaður og sjoppa af bestu gerð. Hann byrjaði neðarlega við Heiðarveginn en flutti sig seinna ofar þar sem Faxastígur sker Heiðarveginn. Þar eru næg bílastæði, húsnæðið er rúmgott og bjart og þar mætir manni hlýlegt og vinalegt viðmót. (meira…)
Lofa góðum tilþrifum og fjöri

Á laugardaginn fer fram fyrsta torfærukeppnin í Íslandsmótinu. Mótið verður haldið í Vestmannaeyjum og hefst keppni kl. 13:30 austur á Nýja hrauni. Bílarnir fara í gegnum sex brautir og má búast við að keppnin standi eitthvað fram eftir degi. Alls eru 23 bílar skráðir til keppni, sem gerir mótið eina af stærstu torfærukeppnum sem haldnar […]