�?g biðst afsökunar á ummælum sem voru óviðeigandi

Ég undirritaður, Sigmar Jónsson, harma þau ummæli sem ég lét falla í viðtali við fréttamann Kastljós og birt voru í þættinum 17.apr sl. Hið rétta er að í þeim tilfellum þar sem aðstæður í Landeyjahöfn eru erfiðar siglir Herjólfur ekki til hafnarinnar. Ég hef aldrei orðið vitni að því að skipstjórar Herjólfs hafi vísvitandi tekið […]

�?tvarpað frá borgarafundinum um samgöngumál

Borgarafundurinn um samgöngumál, sem haldinn verður í Höllinni kl. 18.00 í kvöld, verður útvarpað á Útvarpi Suðurlands. Í Eyjum verður sent út á tíðninni 96,3 en á Suðurlandi á tíðninni 93.3. (meira…)

Viljum fá skýr svör um framtíð Landeyjahafnar

Almennur borgarafundur um málefni Landeyjahafnar verður haldinn í Höllinni á morgun, fimmtudaginn 18. apríl klukkan 18:00. Horfum til framtíðar er yfirskrift fundarins en að fundinum stendur áhugahópur um samgöngur við Vestmannaeyjar. Fundarstjórar eru Guðmundur Þ. B. Ólafsson og Friðrik Björgvinsson en fjölmargir aðilar flytja stutt erindi á fundinum, auk þess sem ályktun hópsins er borin […]

Góður gang­ur í utankjör­fundar­atkvæða­­greiðslu

Kjósendur í Suðurkjördæmi hafa níu daga til að ákveða sig hverjir verða fyrir valinu þegar kemur að kosn­ingum til Alþingis þann 27. apríl nk. Yfirkjörstjórn í Suður­kjördæmi hefur úrskurðað ellefu framboð gild. Utankjörfundar­atkvæðagreiðsla hefur staðið í nokkurn tíma og hefur farið vel af stað í Vestmannaeyjum. (meira…)

Eigið fé í árslok nam 4,95 milljörðum króna

Ársreikningar Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans fyrir árið 2012 voru lagðir fram á fundi bæjarráðs á mánudag og samdægurs sam­þykktir til seinni umræðu í bæjar­stjórn. ­Rekstrartekjur á árinu námu um 4.267,6 millj. kr. samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 3.380,3 millj. kr. Rekstrartekjur A-hluta námu um 3.240,5 […]

ÍBV sigraði Fram í þriðja leik

ÍBV hafði sigur á FRAM, 19-18, í framlengdum þriðja leik undanúrslita N1-deildar kvenna í handknattleik í FRAMhúsinu í kvöld. Staðan í hálfleik venjulegs leiktíma var 8-7 fyrir ÍBV og jöfn, 16-16, að sextíu mínútum afloknum. Staðan í einvíginu er nú 2-1 fyrir Fram og fjórði leikurinn fer fram í Eyjum klukkan 15 á laugardag. Strax […]

�?tlar að beita sér fyrir því að virðisaukaskattur á gistingu hækki ekki í 14 prósent

Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra var stödd í Eyjum í dag. Fundaði hún meðal annars með stjórn Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja. Á fundinum handsalaði hún það við Magnús Bragason, hótelstjóra á Hótel Vestmannaeyjum, að beita sér fyrir því að gistináttaskatturinn sem ríkisstjórnin hefur samþykkt að hækka í 14 prósent 1. september næstkomandi, verði ekki hækkaður. (meira…)

Hermann fékk hlýjar móttökur

Eins og áður hefur komið fram, lék karlalið ÍBV gegn Portsmouth á heimavelli þeirra síðarnefndu, Fratton Park í gær. Lokatölur urðu 2:1 fyrir Portsmouth en þjálfari ÍBV, Hermann Hreiðarsson fékk hlýjar móttökur þegar hann kom inn á í lið ÍBV. Hann skipti svo yfir og lék með Portsmouth síðustu fimm mínútur leiksins. Hægt er að […]

Fara leikmen ÍBV í sumarfrí í kvöld?

Í kvöld, klukkan 18:30 verður þriðji leikur ÍBV og Fram í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik. Fram hefur unnið fyrstu tvo leikina og dugir sigur í kvöld til að komast áfram í úrslit. Eyjastúlkur eru í sárum eftir að Fram niðurlægði ÍBV í Eyjum á sunnudag þar sem þær völtuðu yfir Eyjaliðið. Allt bendir hins […]

Lóan er komin

Jóhann Guðjónsson, fyrrum skipstjóri og útgerðarmaður á Þristi VE og starfsmaður á grafskipinu Vestmannaey í nokkur ár, er mikill náttúrunnandi og eru það ekki síst fuglar sem eru honum hugleiknir. Hann snaraðist inn á ritstjórn Eyjafrétta í gær og sagði að lóan væri kominn. Hann hefði séð til hennar suður á Breiðabakka. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.