Er tími Léttis að renna út

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í vikunni, var m.a. rætt um Létti, hinn margfræga bát, sem þjónað hefur Vestmannaeyjahöfn um tugi ára. Ljóst er að fara þarf í mjög kostnaðarsamar viðgerðir á bátnum eigi að nota hann áfram. Það sé hinsvegar ljóst að miðað við aldur hans sé hæpið að það borgi sig. Léttir er […]

Vilja breyttar áherslur í Landeyjahöfn

Á mánudaginn kom saman hópur áhugafólks um bættar samgöngur á Kaffi Kró. Fundarefnið var staða mála í Landeyjahöfn en lítið hefur þokast til betri vegar síðan höfnin var opnuð sumarið 2011. Krafa hópsins er að öll áhersla verði lögð á að laga höfnina, áður en nýtt skip verði smíðað. (meira…)

Ekkert varð úr komu James í gær

Ekkert varð úr komu enska markvarðarins David James til Vestmannaeyja í gær. Þegar á reyndi var ófært með flugi til Eyja og því æfði ÍBV liðið í gær án hans. James eyddi nóttinni í Reykjavík en reyna á að koma kappanum til Eyja í dag til að skoða aðstæður. ÍBV liðið heldur hins vegar til […]

Mikið flogið til Eyja um helgina

Mikil eftirspurn er eftir flugi til og frá Eyjum um helgina og hefur Flugfélagið Ernir bætt við aukaflugum föstudag, laugardag og sunnudag. Föstudaginn 22. Feb fer aukavél úr Reykjavík 14:30 og frá Eyjum 15:15, laugardaginn 23. feb fer vél úr Reykjavík um hádegið og frá Eyjum síðdegis. Aukavél sunnudagsins fer úr Reykjavík 17:30 og til […]

Samgöngufundur haldinn í Kópavogi

Samgöngufundur sá sem halda átti í Vestmannaeyjum um samgöngumál Eyjanna á þriðjudag, er um það bil að hefjast í húsakynnum Siglingastofnunar í Kópavogi. Fresta varð fundinum í Eyjum þar sem ekki var flugfært til Eyja. Elliði Vignisson, bæjarstjóri sagði í stuttu samtali við Eyjafréttir að af tveimur slæmum kostum, væri sá illskárri valinn, að halda […]

Vill að ráðherra bregðist við

Árni Johnsen, þingmaður lagði fram spurningu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Árni beindi orðum sínum að at­vinnuvega- og nýsköpunarráðherra, Steingrími J. Sigfússyni og spurði hvort hann væri með lagasetningu í smíðum, sem tryggði forkaupsrétt sjávarbyggða. Eins og áður hefur komið fram, hefur Vestmannaeyja­bær lagt fram kæru vegna kaupa Síldarvinnslunnar á útgerð Bergs-Hugins. (meira…)

Loðnan kemur sífellt á óvart

Það lá vel á Jóni Axelssyni, skipstjóra á Álsey þegar Eyjafréttir slógu á þráðinn til hans í morgun. Þeir voru í blíðuveðri á leið til Þórs­hafnar með 1600 tonn af loðnu. Jón er ánægður með vertíðina, loðnan hafi verið stór og falleg og þó meiri kraftur hafi mátt vera í veiðunum síðustu daga er hann […]

Fullyrt að Kári fari til Bjerringbro

Danski vefurinn hbold.dk segist hafa heimildir fyrir því að línumaðurinn, Kári Kristján Kristjánsson, gangi til liðs við danska úrvalsdeildarliðið Bjerringbro/Silkbeorg í sumar en hann hefur undanfarin þrjú ár leikið með þýska 1. deildarliðinu Wetzlar. (meira…)

�?urfa að hafa talsvert fyrir loðnunni

„Það er víða loðnu að finna, en það þarf talsvert að hafa fyrir henni,“ sagði útgerðarmaður sem rætt var við í gær. Flest skipin voru þá undan Suðausturlandi, en Heimaey VE 1 var að reyna fyrir sér mun vestar. (meira…)

ÍBV með aðra hönd á bronsið

ÍBV er komið með aðra hönd á bronsið, ef svo mætti að orði komast, eftir sigur á HK í Eyjum í kvöld. Lokatölur urðu 27:22 en staðan í hálfleik var 16:10. ÍBV hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleik og náði um tíma sjö marka forystu en HK kom öflugt til leiks í þeim síðari og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.