Páll �?skar á Verslunarmannaballinu

27. október næstkomandi verður haldið hið árlega Verslunarmannaball í Höllinni. Dagskráin verður að vanda glæsileg, svo ekki sé talað um veislumatinn frá Einsa kalda sem boðið verður upp á þetta kvöld. Páll Óskar mun koma fram bæði á skemmtun og balli, en auk hans munu listamenn frá Vestmannaeyjum koma fram á skemmtuninni. (meira…)
Gregg í þjálfarateymi meistaraflokks

Gregg Oliver Ryder mun koma inn í þjálfarateymi meistaraflokks ÍBV fyrir næsta tímabil. Hermann Hreiðarsson mun stýra Eyjamönnum næsta sumar en hann tekur við þjálfun liðsins núna í haust. Gregg, sem er 24 ára gamall Englendingur, hefur þjálfað annan flokk hjá ÍBV og mun sinna því starfi áfram auk þess að koma inn í þjálfarateymi […]
Kvótakerfið

Það er svolítið furðulegt að sjá viðbrögð sumra Eyjamanna við sölu útgerðar Magnúsar Kristinssonar til Samherja og það sérstaklega sjálfstæðismanna, sem sumir hverjir reyna að tengja söluna við skattahækkanir ríkisstjórnarinnar á sjávarútveginum. En svona fyrir þá sem ekki vita, þá var þetta einu sinni útskýrt fyrir mér svona: (meira…)
Skólp fært frá fjöru

Verðmætt fráveituvatn fiskvinnslustöðva má nýta betur en gert er í dag. Vestmannaeyjabær og fiskvinnslur bæjarins vinna í sameiningu að hreinsun og aðskilnaði skólps frá vinnslum og heimilum. (meira…)
Ásmundur sækist eftir þriðja sætinu í Suðurkjördæmi

Ásmundur Friðriksson sækist eftir 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Ásmundi. Ásmundur, sem um árabil var búsettur í Vestmannaeyjum, var auk þess bæjarstjóri í Garði en kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi ákveður fyrirkomulag við val á listann á næstunni. Tilkynningu Ásmundar má lesa í heild sinni […]
Fjölbreytt úrræði og sveigjanleg

Jónína Sigurðardóttir útskrifaðist úr iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri árið 2001. Hún er uppalin í Vestmannaeyjum og er dóttir Sigurðar Guðmundssonar (Sigga á Háeyri) og Elsu Einarsdóttur. Jónína hefur starfað á Æfingastöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra frá árinu 2001. Æfingastöðin sinnir umfangsmestu sjúkra- og iðjuþjálfun barna og ungmenna á landinu. Hlutverk stöðvarinnar er að efla […]
Markverðirnir bestir hjá ÍBV

Í kvöld fór fram sumarlokahóf ÍBV-íþróttafélags í Höllinni en þar koma saman leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og aðrir félagsmenn og fagna árangri sumarsins. Hápunktur kvöldsins er þegar verðlaun eru veitt fyrir sumarið. Í ár voru það markverðir ÍBV sem voru valin best en það eru þau Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir og Abel Dhaira. Efnilegust voru valin þau […]
Silfrið rann úr greipum Eyjamanna

ÍBV endaði sumarið í þriðja sæti Pepsídeildarinnar en Eyjamenn áttu alla möguleika á að tryggja sér silfrið í dag. Jafntefli hefði dugað til að fá verðlaunapeninginn um hálsinn en ÍBV tapaði 2:1 fyrir Fram á Laugardalsvelli, eftir að hafa verið 0:1 yfir í hálfleik. Eyjamenn enda því í þriðja sæti Íslandsmótsins, þriðja árið í röð […]
Jafntefli í fyrsta leik hjá strákunum

Karlalið ÍBV gerði jafntefli í fyrsta leik sínum í 1. deild karla í vetur en liðið tók á móti Stjörnunni í dag og urðu lokatölur 22:22. Eyjamaðurinn Gunnar Berg Viktorsson stýrir liði Stjörnunnar en liðin áttust einmitt við í æfingaleikjum á dögunum. Leikurinn var kaflaskiptur og liðin skiptust á að hafa forystu og voru Eyjamenn […]
Fram hafði betur

Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði í dag fyrir Fram með sex mörkum, 21:27 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 10:15 Fram í vil. Reyndar var staðan 21:26 þegar leiktíminn var úti en Birna Berg Haraldsdóttir, sem lék með knattspyrnuliði ÍBV síðasta sumar, skoraði síðasta mark leiksins úr aukakasti þegar leiktíminn var úti. ÍBV hefur […]