15 ára Eyjastelpa sigraði

Fimmtán ára Eyjastúlka sigraði í samkeppni um besta frumsamda lagið um þróunarhjálp, sem frjáls félagasamtök og Þróunarsamvinnustofnun efndu til nú í vikunni. Viktoría Rún Þorsteinsdóttir frumflutti lagið á Rás tvö og kemur auk þess fram á tónleikum með nokkrum þjóðþekktum tónlistarmönnum á Rosenberg. (meira…)
Haustbragur í fyrsta leik

ÍBV og Grótta skildu jöfn í fyrstu umferð N1 deildar kvenna, 22:22 en liðin áttust við í Eyjum í dag. Jafnræði var með liðunum framan af en undir lok fyrri hálfleiks kom afleitur kafli hjá ÍBV sem varð til þess að Grótta náði fjögurra marka forystu fyrir leikhlé, 9:13. (meira…)
Flugslysaæfing í dag

Stór flugslysaæfing fer nú fram í Vestmannaeyjum. Undirbúningur æfingarinnar hófst í Eyjum á fimmtudaginn en æfingin nær hámarki í dag, klukkan 10:30 til 13:00 um það bil þegar sjálf æfingin fer fram. (meira…)
Fyrsti leikur handboltavetursins í dag

Nú er handboltavertíðin að hefjast en í dag, klukkan 13:30 tekur kvennalið ÍBV á móti Gróttu í N1 deildinni. ÍBV var fyrir mótið spáð fjórða sætinu, á eftir Val, Fram og Stjörnunni en Gróttu var spáð fimmta sætinu, þannig að leikurinn gæti orðið spennandi. (meira…)
Tveir fyrrum og einn verðandi saman í stúkunni

Það vakti athygli í leik Vals og ÍBV í gær að Magnús Gylfason, sem var leystur undan samningi hjá ÍBV degi fyrir leikinn, skyldi mæta á völlinn. Það vakti svo ekki síður athygli þegar hann fékk sér sæti meðal stuðningsmanna ÍBV og settist niður með þeim Heimi Hallgrímssyni, sem þjálfaði liðið á undan Magnúsi og […]
�?g sagði þér að hlusta – ekki sturta

Árlegt lundaball bjargveiðimanna er framundan, það verður haldið í Höllinni 28. september. Veiðifélögin í úteyjunum skiptast á að standa fyrir lundaballinu og þá sjöunda hvert ár, hver eyja. Alltaf er mikið lagt í skemmtidagskrána og undirbúningur oft ærinn. Það er metnaður hverrar eyju að toppa síðasta lundaball. Þeir félagar Erpur Snær Hansen og Marínó Sigursteinsson […]
Ljós í leikhúsið

Á laugardaginn kemur fara fram í Höllinni tónleikarnir „Ljós í leikhúsið“ en um er að ræða styrktartónleika þar sem safnað er fyrir nýjum ljósabúnaði fyrir Leikfélag Vestmannaeyja. „Við tökum brot úr 11 söngleikjum þar af 2 atriði af tónleikunum í fyrra sem þóttu of góð til að sleppa þeim“ sagði Birkir Thor Högnason, einn af […]
Laugi hættir sem bæjarfulltrúi

Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gærdag, las Páll Scheving Ingvarsson erindi frá Guðlaugi Friðþórssyni þar sem fram kom að Guðlaugur hyggst láta af störfum sem bæjarfulltrúi V listans. Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir kemur inn í bæjarstjórn í hans stað og Kristín Jóhannsdóttir sem varamaður. (meira…)
Hittust á síðustu goslokahátíð og rifjuðu upp eftirminnilega tíma

Íbúar þriggja gatna sem fóru undir hraun í eldgosinu á Heimaey 1973 hittust á goslokahátíð í júlí síðastliðnum. Hópurinn kallar sig „Urðakettir“ og þetta var í fyrsta sinn sem hann hittist með formlegum hætti. 39 ár voru þá liðin frá því að húsin við Landagötu, Urðaveg og Bakkastíg fóru undir hraun. (meira…)
Djúpið – raunsæ og erfið áhorfs

Það var á köflum erfitt að sitja yfir myndinni Djúpið sem var frumsýnd á sunnudaginn í Háskólabíói. Sérstaklega var atriðið þegar báturinn í myndinni, Breki VE, festir veiðarfærin í sjávarbotni og að lokum sekkur. Kuldinn nísti inn að beini þegar skipverjarnir lenda í sjónum og sorgin, þegar þeir farast hver á fætur öðrum, var áþreifanleg […]