Áætlar að í gærkvöldi hafi sjö þúsund verið í Eyjum

Mikill fjöldi gesta eru nú þegar mættir á þjóðhátíð Vestmannaeyja og í gærkvöldi áætlar lögregla að á sjöunda þúsund manns hafi verið komnir til Eyja og stöðugt hafi bæst við í nótt og morgun. Töluverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sl. nótt. Sex fíkniefnamál komu upp í gærkvöldi og í nótt, í einu málinu […]

Tveggja tíma akstur frá Reykjavík til Landeyjahafnar

Þeir sem hyggjast aka frá Reykjavík til Landeyjarhafnar þurfa að gera ráð fyrir 2 klukkustunda akstri ef aðstæður eru góðar. Hafa skal í huga að á leiðinni er ekið í gegnum þrjá þéttbýliskjarna þar sem hraði er takmarkaður miðað við það sem almennt gerist á leiðinni. Um Verslunarmannahelgina má án efa búast við mikilli umferð […]

Herjólfur tafðist um þrjá tíma

Þriggja tíma töf var á ferð Herjólfs frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja í nótt. Skipið sem átti að leggja af stað klukkan þrjú fór ekki fyrr en klukkan sex í morgun. Óhagstæð sjávarskilyrði urðu til þess að ekki var nóg dýpi í höfninni og sat Herjólfur fastur um tíma. Verið er að athuga með ferðina klukkan […]

Eyjastúlkur öruggar í úrslit 1. deildar

Kvennalið ÍBV lék í kvöld gegn Fjölni í B-riðli 1. deildar kvenna en leikurinn fór fram við frekar erfiðar aðstæður á Hásteinsvellinum. Völlurinn sem slíkur var ekki slæmur heldur veðrið, því á meðan leik stóð var sterkur vindur á annað markið og auk þess rigning lengst af. Eyjastúlkur léku gegn vindinum í fyrri hálfleik en […]

�?s í verslunum Eyjanna

Þjóðhátíðargestir streyma til Vestmannaeyja og álag eykst á ýmsum sviðum bæjarfélagsins. Í fyrra mynduðust biðraðir við matvöru- og áfengisverslanir á tímabili, enda margfaldast íbúafjöldinn yfir verslunarmannahelgina. Sighvatur Jónsson spjallaði við viðskiptavini og starfsfólk matvöruverslunar í ösinni í Vestmannaeyjum í gær. (meira…)

�?trúleg skemmdarverk

Það er ljóst að einhverjir sem eiga mjög bágt hafa verið á ferðinni í miðbænum í gær. Í morgun blasti ekki fögur sjón við okkur sem fórum um miðbæinn okkar. Aspartrén sem glatt hafa augu okkar allra bæði að sumarlagi sem og á vetrarmánuðum, þá skreytt ljósaseríum, hafa orðið fyrir barðinu á skemmdarvargi eða vörgum […]

Löggæsla efld til muna

Löggæsla hefur verið efld frá fyrra ári og fíkniefnalöggæsla er öflug eins og alltaf áður. Nú verður mikil löggæsla og ekki síst fíkniefnalöggæsla í Landeyjahöfn á vegum lögreglunnar á Hvolsvelli sem njóta aðstoðar lögreglunnar á Selfossi. Að auki mun sérstakt teymi fíkniefnalögreglu­manna á vegum ríkislögreglustjóra sinna eftirliti og munu koma yfir til Eyja til aðstoðar […]

Gestir í Herjólfsdal gætu orðið fjórtán þúsund í ár

Ríflega 11.600 farþegar eiga bókað far til Eyja vikuna og dagana fyrir þjóðhátíð en reikna má með að einhver hluti farþega með Herjólfi fyrri part viku hafi verið í dagsferðum. Ef farið er yfir flutningstölur frá síð­ustu þjóðhátíð þá komu 9.400 þjóðhátíðargestir með Herjólfi og flugi en nú má allt eins má reikna með um […]

Nýja tilraunin gekk vel

Í dag var gerð áhugaverð tilraun þegar reynt var að koma skipulagi á tjöldun hvítu tjaldanna á þjóðhátíð. Til þessa hefur verið hálfgert skipulagsleysi þegar kemur að því að finna tjaldinu pláss en nú var ákveðið að láta slag standa, hælun tjaldplássa yrði ekki leyfð fyrr en á slaginu 18:00 og var fengin fallbyssa til […]

Allt á fullu í Landeyjahöfn

„Tjaldbúarnir og þeir sem ætla á þjóðhátíð fara að koma. Traffíkin í dag hefur ekkert verið meiri en venjulega þar sem það hefur alltaf allt verið fullskipað frá því að höfnin opnaði,“ segir Sigmar Jónsson. Hann segir farið að bæta við ferðum á morgun en þá verða farnar átta ferðir. Farnar verði sex, sjö og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.