Nýja tilraunin gekk vel
Í dag var gerð áhugaverð tilraun þegar reynt var að koma skipulagi á tjöldun hvítu tjaldanna á þjóðhátíð. Til þessa hefur verið hálfgert skipulagsleysi þegar kemur að því að finna tjaldinu pláss en nú var ákveðið að láta slag standa, hælun tjaldplássa yrði ekki leyfð fyrr en á slaginu 18:00 og var fengin fallbyssa til að gefa merki. Tjaldbúar biðu spenntir og minnti uppákoman helst á villta vestrið þegar hleypt var á ný landsvæði. Og þótt fallbyssan hafi klikkað, beið fólk þar til klukkan á stóra sviðinu sló 18:00 og hljóp þá af stað. Myndir og myndband af viðburðinum má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.